Document Actions

Norræna ráðherranefndin sammála Norðurlandaráði um auknar áherslur til að koma í veg fyrir brottfall

Norrænir stjórnmálamenn vilja aðgerðir til að koma í veg fyrir brottfall ungra nemenda úr námi. Norræna ráðherranefndin styður þær rannsóknir og aðgerðir sem þegar hafa verið settar af stað með það að markmiði að tryggja að aðlögun úr skóla á vinnumarkað takist vel.

28/10 2008

Mikið brottfall nemenda úr námi á Norðurlöndum var til umræðu á Norðurlandaráðsþinginu. Stöðugt fleiri ungir nemendur ljúka ekki framhaldsskólamenntun og mælist brottfall nú 20% á Norðurlöndunum.

Á tímum þar sem skortur á vinnuafli getur verið yfirvofandi gæti þetta orðið vandamál i velferðarsamfélaginu og Norðurlandaráð vill því auka aðgerðir til að sporna gegn brottfalli.

Ráðherranefndin hefur einnig fjallað um vandann, meðal annars í hnattvæðingarstefnu sinni, en það er stefna sem tekur mið af öllum tækifærum og áskorunum út frá norrænum sjónarmiðum.

Eitt af þeim fjórtán verkefnum sem falla undir stefnuna nefnist „Góð menntun fyrir unga sem aldna” í verkefninu er lögð áhersla á að styrkja menntun ungs fólks og minnka brottfall.

„Hvatning Norðurlandaráðs til að beina sjónum að brottfalli úr framhaldsskólum fellur vel að stefnu hnattvæðingarverkefnis okkar og við lýsum ánægju með framtak ráðsins”, segir Gard Titlestad deildarstjóri hjá Norrænu ráðherranefndinni.

Meginmarkmið verkefnisins er að fjölga þeim unglingum sem ljúka menntun eftir grunnskóla, og auka norræna þekkingu á lestrar- og skriftarkennslu fyrir fullorðna.

Vinnan fellur undir norrænt skólasamstarf undir stjórn Norrænu ráðherranefndarinnar.

Nú þegar hafa verið settar af stað fjórar aðgerðaráætlanir:

Náms- og reynslumiðlun um fjölgun þeirra sem ljúka framhaldsskóla
Þróunarstarf um frumkvöðlafræði og menntun á Norðurlöndunum
Rannsókn á áhrifum lestrarkennslu fullorðinna
Stofnun umræðuvettvangs til miðlunar reynslu á sviðinu í framtíðinni

Menntamálaráðherrarnir funduðu þann 28. október á Norðurlandaráðsþinginu. Á fundi sínum ræddu þeir meðal annars um skýrsluna „Leið unga fólksins úr skóla á vinnumarkað”, sem unnin var af fjölda norrænna vísindamanna undir stjórn Jonas Olofsson frá Háskólanum í Lundi.

Í skýrslunni, sem einnig verður kynnt á ráðstefnu í Lundi þann 18. nóvember, er fjallað um brottfall á Norðurlöndunum og leiðina úr skóla á vinnumarkað.

„Fleiri aðgerðir eru í bígerð í tengslum við hnattvæðingarverkefnið „Góð menntun fyrir unga sem aldna”, svo við eru ánægð með að Norðurlandaráð skuli hafi málefnið í brennidepli", segir Gard Titlestad.