Document Actions

Norræna tölvuleikjaáætlunin er velheppnuð áætlun fyrir börn og ungt fólk

Í tengslum við fund menningarmálaráðherranna í Stokkhólmi sagði Katrín Jakobsdóttir menningarmálaráðherra þetta um Norrænu tölvuleikjaáætlunina:

29/10 2009
Katrín Jakobsdóttir

Katrín Jakobsdóttir hittir á fimmtudag norræn starfssystkin sín til þess að ræða hnattvæðingarstefnu ráðherranna á menningarsviðinu.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

- Við vitum, bæði frá iðnaðinum og stjórnmálamönnunum að þetta er vel heppnuð áætlun fyrir börn og ungt fólk, og að því ætti að halda henni áfram. Jafnvel þó menningarmálaráðherrarninr hafi enn ekki rætt framtíð áætlunarinnar, munu þessi jákvæðu viðbrögð verða hluti af umræðum okkar. Það er sérstakt ánægjuefni fyrir okkur Íslendinga, þar sem þessi áætlun á rætur sínar að rekja í formennskuáætlun Íslands frá 2004.

Katrín Jakobsdóttir hittir norræn starfssystkin sín á fimmtudag til þess að ræða hnattvæðingarstefnu ráðherranna á menningarsviðinu og breytingar og aðlögun skipulagsbreytinga á norræna menningarsamstarfinu.

Norrænu tölvuleikjaáætluninni var ýtt úr vör árið 2006 og er hún mikilvægur hluti norræna menningarsamstarfsins. Markmið áætlunarinnar er að bæta aðgengi norrænna barna og ungs fólks að norrænum tölvuleikjum. Verkefnið er nú á fjórða starfsári sínu af sex. Norrænu mennignarmálaráðherrarninr hafa ekki enn tekið endanlega ákvörðun um framtíð áætlunarinnar.