Norrænar aðgerðir til að stöðva brottfall úr námi
Allt of margt ungt fólk á Norðurlöndunum hættir námi. Norrænu ríkin fimm gera nú allt hvað þau geta til að koma í veg fyrir brottfall úr skóla.
Eins og staðan er í dag hættir hver fimmti nemandi í Danmörku í réttindanámi. Sama er upp á teningnum í Noregi og Svíþjóð. Þetta eru allt of margir, segja fulltrúar í Norðurlandaráði, sem vilja taka á þessu mikla brottfalli. Stjórnmálamennirnir leggja fram sameiginlega tillögu um aðgerðir sem miða að því að fleira ungt fólk ljúki námi.
„Við verðum að gera allt hvað við getum til að koma í veg fyrir að unga fólkið hætti í námi. Hnattvæðingin veldur því að við verðum að efla þekkingu og menntun og mæta þannig vaxandi samkeppni frá öðrum löndum. Við höfum hreinlega ekki efni á því að einungis 8 af hverjum 10 nemendum ljúki sínu námi. Þess vegna ætlum við að leita leiða til að fá fleira ungt fólk ljúka prófi", segir Mogens Jensen, formaður Menningar- og menntanefndar Norðurlandaráðs.
„Ríkisstjórnir Norðurlanda gera miklar kröfur um að ungt fólk mennti sig. Það viljum við einnig, en við verðum jafnframt að hvetja unga fólkið og leggja áherslu á að það skipti máli að þau ljúki námi. Norrænu menntakerfin eiga margt sameiginlegt, þannig að auðvelt ætti að reynast að læra hvert af öðru," segir Mogens Jensen og vísar til þess að í Finnlandi, séu t.d. tiltölulega fleiri sem ljúki prófi en annars staðar á Norðurlöndunum.
Ákvörðun Norðurlandaráðs um að sporna gegn brottfalli nýtur stuðnings rúmlega 25 álitsgjafa í löndunum, þar á meðal menntastofnanna og samtaka. Þeir benda sérstaklega á að mikil áhersla á fræðilegt nám hafi áhrif á hversu margir hætti námi.
„Stöðugt meiri áhersla er nú lögð á bóklegt nám í skólunum. Það veldur því að þeir sem eiga í erfiðleikum með lestur og þeir sem eru tvítyngdir hætta námi strax í grunnskóla, og það er rót vandans. Við verðum að tryggja samhengi og bæta tengsl milli fræðilegs og faglegs náms, til að koma í veg fyrir brottfall þeirra nemenda sem valið hafa iðnmenntun.
„PISA-könnunin sýnir einvörðungu fram á magnmælingar á nokkrum fjölda sviða, en við vitum að Norðurlöndin eru sterk á ýmsum sviðum, sem alls ekki eru mæld eða koma fram í könnuninni. Við megum ekki laga allt skólakerfið að því að við viljum koma vel út í PISA-könnunum. Nú beinum við því til menntamálaráðherra landanna að þeir skoði málið betur", segir Mogens Jensen að lokum.
Nýja tillagan, um baráttu gegn brottfalli, verður lögð fram þann 29. október á Norðurlandaráðsþinginu í Helsinki.
