Document Actions

Norrænar leiðir til hagvaxtar

Í greinasafninu „Vækst, kreativitet og innovation i Norden” kynnir KreaNord 18 dæmi um fyrirtæki frá norrænu ríkjunum fimm Íslandi, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku auk Færeyja þar sem sýnt er fram á hvernig norræn fyrirtæki í skapandi greinum sýna, þrátt fyrir kreppu, ótrúlegan vöxt samhliða því að hvetja atvinnulífið almennt með sköpunarkrafti og nýsköpun.

16/02 2012
Ljósmyndari
Ole Musken/Moods of Norway

Dæmasafnið sýnir að mörkin milli skapandi greina og atvinnulífs almennt eru á stöðugri hreyfingu: Iðnfyrirtæki nota skapandi hæfileika og fyrirtæki í skapandi greinum taka gífurleg vaxtarstökk þegar þau öðlast viðskiptaþekkingu. Markmiðið með dæmunum 18 er að kynna skapandi og nýstárlegar leiðir sem norræn fyrirtæki hafa notað til að þróa viðskiptalíkön, hugmyndir eða nýjar vörur.

„Í skapandi greinum felast mikil tækifæri til að auka útflutning á alþjóðamarkað. Þar að auki eru Norðurlönd nýsköpunarsvæði þar sem gott er að fjarfesta. Það er gott fyrir sameppnishæfni og atvinnustig”, segir Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

Fyrirtækin sem kynnt eru, eru afar ólík: Mismunandi að stærð, í ólíkum geirum og vinna að mismunandi úrlausnarefnum. Nokkur þeirra eru í framleiðslugeiranum, önnur úr skapandi greinum (t.d. hönnun, tónlist, tölvuleikjaframleiðslu). Allt frá risum á heimsmælikvarða eins og tískufyrirtækinu H&M; eða matvælafyrirtækinu Danish Crown til menningarfyrirtækisins Åmot Operagård eða teiknimyndafyrirtækisins CAOZ.

Öll eiga þau sameiginlegt að samspil menningarlegra/skapandi og viðskiptatengdra krafta innan fyrirtækjanna hefur borið ávöxt, skapað vöxt og framþróun. „Vækst, kreativitet og innovation i Norden” færir því fyrirtækjum í sköpunargreinum og atvinnulífinu almennt hugmyndir. Auk þess að vera grundvöllur pólitískrar umræðu um hvernig efla má umgjörðina og stuðla að auknum vexti í skapandi greinum á Norðurlöndum.

Það er Miðstöð um menningar- og afþreyingarhagkerfið (CKO) í Danmörku sem gefur út „Vækst, Kreativitet og Innovation i Norden” fyrir KreaNord-verkefni Norrænu ráðherranefndarinnar. CKO vinnur þegar mörg verkefni fyrir Norrænu ráðherranefndina. M.a. er CKO fulltrúi norrænu ríkjanna í stóru ESB-verkefni, sem miðar að því að auðvelda aðgang skapandi greina að áhættufjármagni, miðstöðin sér einnig um samstarf norrænna stjórnvalda um að efla skapandi greinar á Norðurlöndum og þróun samstarfsnets áhættufjárfesta (business angel network). Nánari upplýsingar og krækjur til að hlaða niður dæmasafninu á: www.norden.org/is/utgafa, http://www.kreanord.org eða www.cko.dk

Tengiliðir

Therese Johansen
Sími +45 21 71 71 15
Tölvupóstur thjo@norden.org