Norrænar loftslagslausnir vegvísir fyrir nýjan loftslagssamning
Norrænar lausnir að sjálfbærri loftslagsþróun eru mikilvægar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum í heiminum. Dagana 8. og 9. september 2009 verður haldin kynning á fjölda loftslagslausna á stórri ráðstefnu „Nordic Climate Solutions“, sem haldin verður í Bella Center í Kaupmannahöfn, en þátttakendur verða um þúsund fyrirlesarar og stjórnmálamenn.
„Norðurlöndin eru í fararbroddi hvað varðar nútíma loftslagslausnir og Nordic Climate Solutions er upplagður vettvangur til að sýna og beina sjónum að styrk Norðurlandanna jafnt innan öndvegisrannsókna og orkutækni. Það er því ánægjulegt að sjá stóra áætlun eins og öndvegisrannsóknaáætlunina (TFI) kynnta á ráðstefnunni“, segir Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Dana setur ráðstefnuna þann 8. september. Halldór Ásgrímsson slítur ráðstefnunni þann 9. september og mun þá gera grein fyrir nokkrum verkefnum sem norrænu ríkin vinna saman að til að mæta áskorunum sem loftslagsbreytingarnar hafa í för með sér. Jafnframt verða teknar saman óskir ráðstefnugesta um innihald alþjóðlegs loftslagssamnings sem unnið er að og fjallað verður um á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember. Ráðstefnan Nordic Climate Solutions er haldin einungis tveimur mánuðum fyrir stóru loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, Danmörk er gestgjafi ráðstefnunnar og á sama tíma fer Svíþjóð með formennsku í ESB.
Norræna ráðherranefndin, í samstarfi við fjölda norrænna stofnanna, tekur nú þátt í undirbúningi ráðstefnunnar Nordic Climate Solutions, en hún er nú haldin annað árið í röð. Reiknað er með þúsundum gesta á ráðstefnuna frá rúmlega fjörtíu þjóðlöndum. Meðal annarra þátttakenda verða Andirs Piebalgs frá Framkvæmdastjórn ESB, Connie Hedegaard loftslags- og orkumálaráðherra Danmerkur, þingmenn frá ESB og framkvæmdastjórar í orku- og samgöngugeiranum.
Loftslags- og orkulausnir eru ofarlega á dagskrá norrænu forsætisráðherrannaNorræna ráðherranefndin vinnur til að mynda að nokkrum verkefnum til að mæta áskorunum hins alþjóðlega loftslagsvanda.Sem dæmi má nefna; Nordic Climate Solutions, Öndvegisrannsóknaáætlunin og Nordic Energy Solutions.
