Norrænir fiskveiðisérfræðingar hittast
Fulltrúar Norðurlanda í alþjóðasamstarfi á sviði fiskveiða ætla að setjast á rökstóla í Kaupmannahöfn í vikunni. Þeir hafa góða innsýn í starf sinna samtaka og þau málefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Það veitir norrænu ríkjunum tækifæri til að sýna frumkvæði og setja ný mál á dagskrá. Norðurlandabúar eru að störfum á skrifstofum margra alþjóðastofnana á sviði sjávarútvegs.
Norræna samstarfsnefndin um sjávarútveg (NEF) hefur boðið norrænum fulltrúum frá sjö alþjóðastofnunum til óformlegs fundar þar sem ætlunin er að skiptast á upplýsingum. Meðal annars verður rætt hvaða málefni eru fram undan í starfi þessara stofnana og hvaða mál norrænu ríkin hafa hag í að láta til sín taka.
Þá er ætlunin að koma á laggirnar tengslaneti norrænna starfsmanna hjá alþjóðlegum fiskveiðistofnunum. Til að byrja með munu menn miðla upplýsingum sín á milli og frá Norrænu ráðherranefndinni. Haft verður að leiðarljósi að upplýsa tengslanetið um þau verkefni sem unnið er að hjá alþjóðastofnunum, efna viðræðna og þau málefni sem norrænu ríkin ættu að setja í forgang.
Þeir sem verða með erindi á fundinum eru Ásmundur Guðjónsson, NMRS, Carl-Christian Schmidt, hjá Efnahags- og framfarastofnun Evrópu OECD, Charlotte Winsnes, hjá NAMMCO, Grímur Valdimarsson, hjá matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), Hans Lassen, ICES, Kjartan Hoydal, NEAFC, Ole Tougaard, frá sjávarútvegsdeild Evrópusambandsins og Victor Hjort frá EUROFISH.
Eftir að hver og einn hefur greint frá starfsemi sinnar stofnunum verða umræður um hvernig haga megi samstarfi í tengslanetinu og hvert hlutverk hver stofnun fær í því.
