Norrænir fjármálaráðherrar funda í Kaupmannahöfn
Mánudaginn 22. mars er Claus Hjort Frederiksen, fjármálaráðherra Danmerkur gestgjafi á fyrsta fundi norrænu fjármálaráðherranna á formennskutíma Dana í Norrænu ráðherranefndinni árið 2010. Ráðherrar frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Íslandi og Noregi sitja fundinn, auk staðgengla frá Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi.
Ráðherrarnir munu meðal annars ræða um efnahagsþróunina og þau úrlausnarefni sem verið er að vinna að í norrænu ríkjunum, sem og ESB/EES málefni og skattamál sem varða öll ríkin.
Eftir fundinn gefst fjölmiðlum tækifæri til að ræða við ráðherrana.
Staður: Fjármálaráðuneytið, Christiansborg Slotsplads 1, Kaupmannahöfn.
Fréttamannafundur: 22. mars klukkan 13:15.
Vinsamlega hafið fjölmiðlaskírteini með.
Jafnframt verður haldin ráðstefna í tengslum við fundinn en meðal fyrirlesara eru Torben M. Andersen frá Árósarháskóla, Xavier Debrun frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og Giuseppe Bertola frá háskólanum í Torino, en þeir munu fjalla um áhrif efnahagskreppunnar.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru allir greinahöfundar í nýju tímariti um efnahagsmál, Nordic Economic Policy Review (NEPR). Tímaritið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni og kemur út í fyrsta sinn í júní 2010. Fjölmiðlar eru velkomnir á ráðstefnuna. Skráning er nauðsynleg.
Skráning hjá:
Ola Yndeheim
ráðgjafa
Norrænu ráðherranefndinni
oy@norden.org
sími: +45 21 71 71 16
fyrirspurnir fjölmiðla til:
Mats Holmström
ráðgjafa
Norrænu ráðherranefndinni
maho@norden.org
sími: +45 21 71 71 53
