Norrænir ráðherrar matvæla funda í Þrándheimi 28. júní og ræða um niðurstöður ráðstefnunnar Rio+20. Sérstök áhersla verður lögð á matvælaframboð og grænan hagvöxt, en ráðherrarnir munu einnig ræða tækifæri til tengja græna geirann félagslegum og heilsutengdum aðgerðum á Norðurlöndum.
Alls funda níu norrænir ráðherrar dagana 26. - 29. júní í Þrándheimi, en það eru ráðherrar sem fara með málefni fiskveiða, fiskeldis, landbúnaðar, matvæla og skógræktar.
Noregur fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni 2012 og norski landbúnaðar- og matvælaráðherrann Trygve Slagsvold Vedum segir um ráðherrafundinn:
˵Alþjóðleg áhersla á matvælaöryggi og matvælaframleiðslu eykst stöðugt. Í Rio-yfirlýsingunni kemur fram að framleiðslan skuli vera umhverfisvæn og sjálfbær. En við getum ekki leyst öll hnattræn úrlausnarefni á þessu sviði, ef ríkin hvert fyrir sig eru ekki tilbúin að taka meiri ábyrgð á eigin matvælaframleiðslu", segir Slagsvold Vedum.
Aðstoðarframkvæmdastjóri Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, Ann Tutwiler, tekur einnig þátt í fundinum til að ræða lokayfirlýsingu Rio+20 ráðstefnunnar við norrænu ráðherrana.
Á Rio+20 ráðstefnunnivann Norræna ráðherranefndin meðal annarra með FAO að því að kynna tækifæri sem felast í Nýrri norrænni matargerðarlist þar sem staðbundið hráefni og árstíðabundin matargerð gætu gagnast fátækum landbúnaðarhéruðum í öðrum heimshlutum.
Annað málefni sem rætt var á fundinum voru tækifæri innan svonefndar grænnar umönnunar.
Um er að ræða félagslega- og heilsutengda þjónustu, þar sem landbúnaður í samstarfi við til að mynda sveitarfélög eða aðra opinbera aðila aðstoðar þurfandi hópa, allt frá börnum sem eiga í námserfiðleikum, flóttamönnum til fíkniefnaneytenda eða eldri borgara í endurhæfingu.
Noregur hefur sérlega mikla og góða reynslu af þessu og ráðherrarnir munu meðal annars skoða reynslu annarra norrænna ríkja hvað varðar rannsóknir og framkvæmd á sviðinu.
Ráðherrafundurinn verður haldinn dagana 28. og 29. júní. Nánari upplýsingar eru hér.
Lesið einnig frétt frá landbúnaðar- og matvælaráðuneytinu í Noregi.
Michael Funch
Tölvupóstur
mifu@norden.org
Antal Astraea Astraea.Antal@lmd.dep.no