Norrænir ráðherrar landbúnaðar, fiskveiða og matvæla funduðu 28. júní í Þrándheimi til að ræða eftirfylgni niðurstaðna Rio+20. En einnig fjölluðu þeir um vandamál sem tengist næringarmálum á Norðurlöndum. Ráðherrarnir voru sammála um að leggja áherslu á aukið norrænt samstarf um meðal annars leiðbeiningar um matvælaneyslu og rannsóknir á matvælum.
˵Við getum sparað mikið á auknu samstarfi, á mörgum sviðum. Bæði hvað varðar stjórnun og uppbyggingu á gagnagrunnum um matvæli, en einnig með tilliti til sameiginlegra aðgerða eins og Skráagatsins", sagði Kjell Erik Øie ráðuneytisstjóri.
Norrænu ráðherrarnir um landbúnað, fiskveiðar og matvæli vilja auka fjármagn til sameiginlegra aðgerða á sviði matvæla. Þess vegna vilja þeir nýta 6 milljónir úr forgangssjóði Norrænu ráðherranefndarinnar í velferðaraðgerðir á sviði matvælaneyslu.
Þegar á heildina er litið borðum við sama mat á Norðurlöndunum. En við vitum ekki alltaf hvað er í matnum og næringarinnihald matarins getur til að mynda breyst.
Á námstefnu sem haldin var í tengslum við ráðherrafundinn var meðal annars rætt um kynningu á nýjum leiðbeiningum um matvælaneyslu, sem eru auðlind sem nýta mætti alls staðar í heiminum. Þessar leiðbeiningar eru einnig grunnurinn að útbreiddu norrænu merki; Skráargatinu.
Í framhaldi af umræðum um leiðbeiningar um neysluvenjur, var rætt um að setja á fót norrænan matvælagagnagrunn. Það er dýrt að setja slíkan gagnagrunn á fót og því gæti norrænt samstarf skipt hér sköpum.
˵Við getum sparað mikið á mörgum sviðum með auknu samstarfi. Bæði hvað varðar stjórnun og uppbyggingu á gagnagrunnum um matvæli, en einnig með tilliti til sameiginlegra aðgerða eins og Skráagatsins", sagði Kjell Erik Øie ráðuneytisstjóri í norska heilbrigðis- og umönnunarráðuneytinu sem einnig sá mikla möguleika í áætluninni um nýja norræna matargerðarlist.
Hann benti einnig á mikilvægi þess að hafa jafnrétti í huga við vinnuna um næringarmál, þá ekki síst félagslegt misræmi sem getur orðið milli þeirra sem neyta holls matar og annarra sem borða óhollt.
Norræna ráðherranefndin hefur frá árinu 2006 unnið eftir rammaáæltun; framkvæmdaáætlun um matvælaneyslu og hreyfingu, sem ráðherrarnir fjölluðu um og mun verða fylgt næstu ár.
Ráðherrarnir ræddu einnig eftirfylgni niðurstaðnaRio+20 ráðstefnunnar við aðstoðarforstjóra FAO Ann Tutwiler, sem hrósaði norrænu ríkjunum fyrir aðgerðir á heimsvísu á sviði matvæla.
Ráðherranefndin samþykkti í tengslum við umræður um alþjóðlega ábyrgð Norðurlandanna, yfirlýsingu um hlutverk undirstöðumatvæla í grænum hagvexti: Niðarósayfirlýsingin.
Þar er lagt til að efla norrænt samstarf á sviði matvæla- og skógræktar, ekki síst um rannsóknir og hámörkun aðstæðna fyrir matvæla- og skógræktargeirann.
Michael Funch
Tölvupóstur
mifu@norden.org
Lene Breum Larsen
Sími
+45 29 69 29 43
Tölvupóstur
lbl@norden.org