Document Actions

Norrænir ráðherrar setja grænan hagvöxt í forgang

Grænn hagvöxtur er mikilvæg forsenda hagvaxtar og velferðar á Norðurlöndum til framtíðar. Norrænu atvinnu-, orku- og byggðamálaráðherrarnir segjast þess vegna tilbúnir axla ábyrgð á stórum hluta þeirra ákvarðana um grænan hagvöxt, sem reiknað er með að forsætisráðherrarnir taki á Hnattvæðingarráðstefnu þeirra og fundi sem haldinn verður í kjölfarið.

14/10 2011
Skog
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Norrænn nýsköpunarsjóður getur orðið að veruleika. Ráðherrarnir munu halda áfram að ræða stofnun nýsköpunarsjóðs, Nordic Innovation Fund, í samstarfi við Evrópska nýsköpunarsjóðinn (EIF), sem mundi leggja til þriðjung fjármagns. Tillagan felur í sér háar fjárfestingar, 250 milljónir evra, og jafnframt 50 milljóna evra framlag til  svonefndra ˵viðskiptaengla“.

Ráðherrarnir ræddu nýja samfélagsstefnu ESB og sameiginlegar aðgerðir til að hafa áhrif á nýjar reglur byggðasjóða og ríkisstyrki til byggðasamsamstarfs.

Byggðaþróun á Norðurlöndum var einnig til umræðu, þar sem sjónum var beint að lýðfræðilegum úrlausnarefnum. Meðal annars var rætt um möguleika á því að safna saman fyrirmyndardæmum um  lausnir á lýðfræðilegum vandamálum  á ólíkum svæðum á Norðurlöndum, dæmum sem styðjast mætti við í svæðisbundnum verkefnum.

Ráðherrarnir styrkja áfram norrænt samstarf um okrunýtingu, endurnýjanlega orku og vistvæna vöruflutninga.

Ráðherrarnir leggja áherslu á mikilvægi þess að efla og viðhalda norræna samstarfinu um raforkumarkað. Vinna við sameiginlegan markað, nýtingu endurnýjanlegrar orku og norræn raforkunet er talin hagkvæm. Ráðherrarnir ákváðu að skilgreina sameiginleg úrlausnarefni og aðgerðir sem gætu bætt samstarfið um norræna raforkumarkað. Fyrst og fremst starf sem gæti tryggt raforku til allra og virkan markað, ekki síst með tilliti til neytenda.

Ráðherrarnir funduðu dagana 13. og 14. október 2011 í Helsinki. Finnar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni 2011.

 

Tengt efni
  • Norræna ráðherranefndin um atvinnulífs-, orkumála- og byggðastefnu (MR-NER) (Samtök)

    Samstarf Norðurlandanna á sviði atvinnulífs, orkumála og byggðamála á að tryggja áframhaldandi hagvöxt á svæðinu. Norrænu ráðherrarnir sem fara með málefni atvinnu-, orku- og byggðastefnu stýra samstarfinu.

  • Hnattvæðingarsamstarfið (Samtök)

    Loftslag, umhverfis- og orkumál, rannsóknir, menntun og nýsköpun, landamærahindranir og aukin áhersla á Norðurlöndin í fararbroddi hnattvæðingar. Þetta eru þau svið sem norrænu ríkisstjórnirnar vilja leggja sérstaka áherslu á í norræna samstarfinu um hnattvæðingu, áskoranir og tækifæri fyrir Norðurlöndin.

  • Raforkumarkaðshópurinn (Samtök)

    Noregur, Svíþjóð, Finnland og Danmörk hafa rekið sameiginlegan raforkumarkað um árabil og eru gott dæmi um það hvernig ríki í Evrópu geta rekið raforkumarkað þvert á landamæri.. Enn er þó hægt að bæta starfsemi norræna raforkumarkaðarins.