Document Actions

Norrænir skátar meðal tilnefndra til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

Ákveðið hefur verið hverjir keppa í annarri umferð um Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs. Níu af þeim 63 tillögum sem sendar voru inn halda áfram í annarri umferð. Þrjár tillögur koma frá Svíþjóð, tvær frá Danmörku, tvær frá Finnlandi, ein frá Íslandi og ein tillagan er sameiginleg frá öllum norrænu ríkjunum; skátar á Norðurlöndum.

09/09 2009

Umhverfisverðlaunin, sem nema jafnvirði 350.000 danskra króna, verða nú veitt í fimmtánda sinn. Verðlaunin eru að þessu sinni veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem á einstakan hátt hefur skapað  gott fordæmi við að fá fólk til að stunda útivist og bæta skilning á þýðingu náttúrunnar fyrir andlegt og líkamlegt heilbrigði.
Dómnefnd Náttúru- og umhverfisverðlaunanna ákveður hver hlýtur verðlaunin á fundi sem haldinn verður á Íslandi þann 7. október. Verðlaunin nema  jafnvirði 350.000 danskra  krón og verða  afhent á Norðurlandaráðsþingi sem haldið verður í Stokkhólmi í lok október.

Tilnefndir til umhverfisverðlauna 2009 eru:

Grænar spírur, Danmörku
Skógurinn í skólanum, Danmörku
Alpo Komulainen, Finnlandi
Luonto-Liitto, Finnlandi
Ósk Vilhjálmsdóttir & Ásta Arnardóttir, Íslandi
Sænsku náttúruverndarsamtökin, Svíþjóð
Grenndarnáttúruleiðsögumennirnir, Svíþjóð
Friluftsfrämjandets Riksorganisation, Svíþjóð
Samtök norrænna skáta

Náttúru- og umhverfisverðlaunin eru ein af fjórum verðlaunum Norðurlandaráðs, önnur verðlaun eru veitt fyrir bókmenntir, kvikmyndir og tónlist. Íslenska fyrirtækið Marorka hlaut umhverfisverðlaunin í fyrra.

Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

Tengiliðir

Henrik Hagemann
Sími +45 33 37 59 50
Tölvupóstur henrik.hagemann@ft.dk

Patrik Edman
Sími +45 21 71 71 48
Tölvupóstur ped@norden.org