Document Actions

Norrænir þingmenn í heimsókn í Tornedalen

Þingmenn Norðurlandaráðs funda í Haparanda og Tornio dagana 26. til 27. júní í tilefni þess að nú er því fagnað að 200 ár eru liðin frá merkisárinu 1809.

22/06 2009
Sinikka Bohlin
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Merkisárið 1809 fengu Finnland og Svíþjóð sjálfstæði hvort frá öðru, en náin almanna- og menningartengsl héldu áfram að blómstra í nýjum farvegi. Samband landanna er nú betra en nokkru sinni, segir Sinikka Bohlin forseti Norðurlandaráðs, sem er fædd í Finnlandi, en hefur búið í Svíþjóð í mörg ár.

Landamærahindranir milli Norðurlandanna er meginefni sumarfunda Norðurlandaráðs í ár. Afnám landamærahindrana á Norðurlöndum er mikilvægt verkefni að mati ráðsins. Íbúar svæðisins, þar á meðal Sven-Erik Bucht fulltrúi í sveitarstjórninni og Raimo Ronkainen aðstoðarborgarstjóri, munu leggja sitt af mörkum og miðla reynslu sinni á fundinum.

„Ef við eigum að geta tekist á við þær áskoranir sem hnattvæðingin hefur í för með sér, er mikilvægt að standa vörð um möguleika einstaklinga og atvinnulífs til hreyfanleika. Sem fulltrúar í Norðurlandaráði hvetjum við ríkisstjórnir okkar og Norrænu ráðherranefndina til að bæta samhæfingu og samræmingu laga og reglna í norrænu ríkjunum", segir Sinikka Bohlin forseti Norðurlandaráðs. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að ekki verði til nýjar hindranir um leið og öðrum er rutt úr vegi.

Haparanda er í Svíþjóð en Tornio er Finnlandsmegin við landamærin. Þessir tvö sveitarfélög starfa náið saman yfir landamæri og hafa þannig kynnst hinum ýmsu hindrunum sem til staðar eru milli norrænu ríkjanna.

Bohlin telur Tornedalen vera gott dæmi um svæði þar sem samstarf yfir landamæri hefur náð langt vegna góðs pólitísks vilja og sköpunarkrafts.

Áður en fundirnir hefjast munu hinar fimm nefndir Norðurlandaráðs fara í námsferðir til annars vegar Narvikur og hins vegar Kiruna. Borgara- og neytendanefndin mun meðal annars heimsækja samaþingið, en þar munu fulltrúar nefndarinnar fræðast um aðstæður frumbyggja á Norðurlöndunum.

Í kjölfar tillögu um aukið samstarf á Noðrurlöndunum um geimrannsóknir mun atvinnumálanefndin heimsækja Esrange Space Center, en velferðar- og atvinnumálanefndin mun hitta Ingvar Kamprad stofnanda IKEA og ræða við hann, meðal annars, um sjálfbært atvinnulíf á Norðurlöndum.

Á fundi sínum í Narvik mun umhverfis- og auðlindanefndin beina sjónum að endurskoðun sjávarútvegsstefnu ESB.