Document Actions

Norrænir þingmenn í vettvangsferð á Friðriksbergi

Hvernig má stuðla að skapandi starfi og nýsköpun í norrænum menntakerfum? Það munu 15 norrænir þingmenn úr menningar- og menntanefnd Norðurlandaráðs kynna sér, þegar þeir heimsækja kennaraskólann Metropol á Friðriksbergi í dag.

27/01 2010
Mogens Jensen
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Með heimsókninni vilja þingmennirnir kynna sér hvernig Norðurlönd geti náð miklu betri árangri við að samþætta sköpun, nýsköpun og frumkvöðlastarf í norrænum menntakerfum, á tímum örrar hnattvæðingar.

Nefndin vill því skoða nánar þær kennsluaðferðir sem notaðar eru í hinum framsækna Metropolskóla, til þess að efla skapandi starf og sköpunarþörf bæði kennara og nemenda.

Í heimsókninni munu þingmennirnir m.a. heyra hvernig skólinn hefur með ýmsum hætti reynt að innleiða nýsköpun og frumkvöðlastarf í kennaramenntun, t.d. á fyrsta ári, en uppphafsverkefnið byggir á félagslegu frumkvöðlastarfi.

Þingmennirnir munu einnig fá tækifæri til að heyra fyrrverandi kennaranema segja frá raunverulegri reynslu af nýsköpun og sköpun í kennslu.

Frummælendur, þeirra á meðal Kerstin Laue ráðgjafi frá Samtökum atvinnulífsins í Telemark í Noregi, munu segja frá því hvernig atvinnulíf og skólar geta hafið samstarf um frumkvöðlamenntun.

Norðurlandaráð mun eftir heimsóknina meta og ákveða hvort gefin verði út stefnumarkandi tilmæli og nýjum verkefnum ýtt úr vör, sem leggja má fyrir ríkisstjórnir landanna til samþykktar og geta stuðlað að þróun og virðisauka fyrir hvert land fyrir sig og Norðurlöndin í heild sinni.

Tengiliðir

Anne-Mette Persdotter
Sími +45 33 96 04 50
Tölvupóstur amp@norden.org