Document Actions

Norrænir þingmenn vilja meira jafnrétti í Færeyjum

- Færeyingar eiga langt í land með að ná fram jafnrétti, en með þátttöku fleiri kvenna í stjórnmálum má ná árangri, sagði Anna Ljunggren, fulltrúi í borgara og neytendanefnd Norðurlandaráðs, þegar hún og aðrar konur í nefndinni ræddu við færeyska fréttamenn á sumarfundi nefndarinnar í Færeyjum.

30/06 2011

Satu Haapanen í viðtali við færeyska útvarpið

Anna Ljunggren, sem var á fréttamannafundinum ásamt Satu Haapanen og Maria Stenberg, taldi mikilvægt að færeyskar konur tækju virkari þátt í stjórnmálum og atvinnulífi og nefndi meðal annars að Norðmenn hefðu beitt kynjakvóta til að leysa vandamálið. Kristianna Winther Poulsen frá færeysku jafnréttisnefndinni sagði frá því hvernig hefðir gegndu enn mikilvægu hlutverki í færeysku samfélagi, og því bæru konur enn meginábyrgð á umönnun barna og aldraðra. Eitt af þeim vandamálum sem Færeyingar glíma nú við er að sífellt fleiri konur sækja sér menntun erlendis og og snúa ekki heim að henni lokinni.

- Foreldratryggingin er dæmi um hvernig Færeyjar aðskilja sig talsvert frá öðrum norrænun ríkjum, bæði hvað varðar lengd fæðingarorlofs feðra og hvernig löggjöfinni er háttað. Þau rök að menn vinni mikið, aðallega sem sjómenn, duga ekki sem skýring á stöðunni, að mati Maríu Stenberg.

Á fundi nefndarinnar var mest rætt um brottvísun norrænna ríkisborgara frá Danmörku og sameiginlegt norrænt kerfi um skilagjald á drykkjardósum.

- Hvað skilagjald varðar þá hafnar um einn milljarður dósa utan kerfisins og eftir fleiri ára vinnu að málinu erum við ekki tilbúin að sleppa takinu af því, sagði Martin Kolbert, varaformaður nefndarinnar. Ef vilji er fyrir hendi er hægt að framkvæma þetta, að mati nefndarinnar.

Nefndin er ekki ánægðmeð svör ríkisstjórnanna í þessum mál og Norrænu ráðherranefndarinnar og mun því vinna áfram að þeim báðum.

Borgara- og neytendanefndin heimsótti einnig réttarnefnd Lögþingsins, þar sem meðal annars var fjallað um strangar refsingar við fíkniefnabrotum, því mat manna er að fíkniefni geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir samfélag af þessari stærð. Borgara- og neytendanefndin var áhugasöm um réttindi samkynhneigðra, en í Færeyjum geta þeir hvorki staðfest sambúð sína, né ættleitt börn. Ekki hafa heldur verið samþykkt lög sem banna misrétti gegn samkynhneigðum.

Að auki fékk nefndin tækifæri til að kynnast ráðinu sem fer með færeysk utanríkismál. Færeysk utanríkismál snúast aðallega um fríverslun, fiskveiðiréttindi og fulla aðild að ýmsum samtökum, þar á meðal Norðurlandaráði og ráðherranefndinni.

Nánar um brottvísanir og skilagjaldskerfi á krækjunum hér að neðan.

Tengiliðir

Jenny Pentler
Sími +45 33 96 0445
Tölvupóstur jepe@norden.org

Tengt efni