Velgengni norræna tölvuleikjamarkaðarins nær langt út fyrir Norðurlönd. Og á menningarhátíðinni Nordic Cool í Washington DC var mikill áhugi á því að hitta tvo af þeim tölvuleikjahönnuðum okkar sem eru í fararbroddi.
Meðalaldur gesta var verulega miklu lægri en á öðrum viðburðum á Nordic Cool þegar Saku Lehtinen frá Finnlandi og Kristoffer Touborg frá Íslandi komu fram í Kennedy Center á laugardagskvöld og ræddu um tölvuleikjahönnun: Bak við tjöldin.
Saku Lehtinen sagði frá því að hann hefði byrjað að hanna tölvuleiki þegar hann var 15 ára. Fyrir 24 árum síðan. 1996 réðst hann til tölvuleikjaframleiðandans Remedy og var síðan framkvæmdastjóri fyrirtækisins árið 2002. Hann á meðal annars heiðurinn að leikjunum Max Payne og Alan Wake sem seldir hafa verið í milljónatali.
„Við reynum að vera frumlegir og gera ekki það sama og allir aðrir. Það hefur reynst vel", sagði Saku.
Hann sýndi hluta úr Alan Wake sem gerir árásir með ljós að vopni og hann lofaði börnum í salnum að enginn myndi deyja.
Kristoffer Touborg kynnti sig og sagðist vera hálfur Svíi og hálfur Dani. Nú býr hann á Íslandi og vinnur fyrir CCP.
„Geimskipin koma frá Íslandi, sagði hann í gríni og sýndi hluta úr EVE Online sem nýtur mikilla vinsælda og hefur verið á markaði í tíu ár og er enn í þróun.
Stjórnandinn Mike Snider, sem er flytur fréttir af tæknimálum í þættinum USA Today spurði hvað væri lykillinn að góðu gengi og hvort til væri dæmigert norrænt tölvuleikjaspil.
„Leikirnir okkar geta verið erfiðir og ekki alltaf auðskiljanlegir. Að okkar mati vill fólk takast á við áskoranir og þessvegna gerum við erfiða leiki", sagði Kristoffer.
„Við leggjum okkur fram við að gera eitthvað einstakt, það er ekki góð hugmynd að gera það sama og allir aðrir", sagði Saku.
Þeir töldu einnig, að hátt menntunarstig á Norðurlöndum, öflug þróun nettenginga og að erlendar kvikmyndir eru ekki talsettar heldur aðeins textaðar, gætu verið skýringar á góðu gengi.
Greinilega hefur það virkað. Viðskiptavinir norrænna tölvuleikjaframleiðenda eru miklu fleiri en Norðurlandabúar. CCP hefur til að mynda hálfa milljón áskrifendur, sagði Kristoffer. Á Íslandi búa 320.000 manns.
En hvað er það þá sem er dæmigert norrænt í sjálfum leikjunum?
„Norræni hönnunararfurinn er sterkur, og hann viljum við vernda. Ef til vill eru leikirnir okkar einnig aðeins myrkari", sagði Saku.
Kristoffer bætti við að sósíalrealismi væri hornsteinn í allri norrænni menningu. En hann varaði einnig við að gera leikina of norræna. Maður verður að taka tilliti til þeirra sem spila leikina um allan heim og sem laðast að ólíkum hlutum.
„Við myndum aldrei hanna víkingaleik, fyrir það myndi ég skammast mín ógurlega", sagði hann.
Þeir sögðu einnig frá því hvernig staða tölvuleikja hefur styrkst og þeir standa nú jafnfætis kvikmyndum.
„Þegar ég byrjaði í þessu starfi fannst fjölskyldunni að ég ætti að fá mér almennilega vinnu. En þetta er mitt draumastarf. Ég er hrifinn af hönnun og ég vil að fólk taki þátt", sagði Saku.
„Leikir eru miklu sveigjanlegri miðill en kvikmyndir", bætti Kristoffer við. Þá er hægt að spila hvar sem er og eins lengi og maður vill, maður getur spilað einn eða með öðrum.
Áheyrendur spurðu um hvaða nýjir leikir væru á teikniborðinu, en Saku og Kristoffer vildu ekkert um það segja.
Eftir kynninguna sagði Kristoffer að það hefði komið honum á óvart hve margir gestir Nordic Cool væru.
„Skrítið að sjá hve mikinn áhuga Bandaríkjamenn hafa á því sem við gerum. Það er mjög gaman að ganga hér um og ræða við fólk. Ég ætla að reyna að komast aðeins í bæinn og fá hugmyndir með heim", sagði hann.
(Höfundur: Bengt Rolfer, blaðamaður í lausamennsku)
Jesper F. Schou-Knudsen
Sími
+45 33 96 03 55
Tölvupóstur
jsk@norden.org