Norrænn loftslagsdagur 2011 – málefni tengd loftslagi og mat eru í brennidepli
Hvaða hráefni eru loftslagsvæn og hvernig eru matvæli sem við neytum framleidd og flutt á milli staða? Menntamálaráðherrar Norðurlanda bjóða þetta árið til Norræna loftslagsdagsins þann 11.11.11. Markhópurinn eru nemendur, kennarar, nemar og leiðbeinendur alls staðar á Norðurlöndum.
Á loftslagsdeginum verður sjónum beint að loftslags- og umhverfismálum á Norðurlöndum. Þema dagsins í ár er matur og loftslag. Fjölda samtaka og stofnana er boðið að taka þátt í deginum með viðburðum helguðum loftslagsdeginum. Meðal þeirra sem tóku þátt í loftslagsdeginum í fyrra voru háskólinn í Lundi í Svíþjóð, Veðurstofa Danmerkur og háskólinn í Helsinki í Finnlandi.
Nýjungar í ár eru til að mynda sameiginleg norræn „matreiðslubók", sem birt verður á vefnum. Í bókinni verður umfjöllun um og uppskriftir af loftslagsvænum mat frá öllum norrænu ríkjunum. Nemendur mega gefa ímyndunaraflinu lausan taum við að lýsa verkefninu. Kennarar geta einnig tekið þátt í samkepnni með því að senda inn hugmyndir að kennslu um loftslagsvænan mat.
Meðal þess sem fjallað verður um er t.d. „er munur á CO2-losun við framleiðslu á kjöti og grænmeti" og „hvaða áhrif hefur matvælaframleiðsla á loftslagið?"
Markmiðið með Norræna loftslagsdeginum er að virkja börn og ungmenni í baráttunni fyrir bættu andrúmslofti. Skólar geta tekið þátt í verkefnum sem kynnt verða á vefsíðunni klimanorden.org, eða með því að standa fyrir eigin viðburði eða verkefni á sjálfum loftslagsdeginum.
Hugmyndir að kennsluefni um mat og loftslag verða birtar á vefsíðunni klimanorden.org á haustmánuðum. Á vefsíðunni verða upplýsingar á sænsku, norsku og dönsku, þar sem loftslagsdagurinn er haldinn í tengslum við norræna tungumálaátakið. Einnig verður gefið út fréttabréf sem hægt er að gerast áskrifandi að og opnuð verður Facebook-síða, þar sem hægt verður að fylgjast með því sem er á döfinni hverju sinni.
Nánari upplýsingar um Norræna loftslagsdaginn 2011 eru á vefsíðunni www.klimanorden.org og á Facebook-síðu loftslagsdagsins, en þar má alltaf nálgast nýjustu upplýsingar.
