Document Actions

Norrænn loftslagsdagur á vefnum

Kennarar á Norðurlöndum eiga þess nú kost að sækja hugmyndir og kennsluefni um loftslagsmál á vefsíðuna klimanorden.org , en á henni eru jafnframt allar upplýsingar um Norræna loftslagsdaginn 2010.

Aug 17, 2010
Barn och unga

Vefsíðan klimanorden.org hefur verið opnuð. Markmiðið með Norræna loftslagsdeginum er að virkja börn og ungmenni til að taka þátt í baráttunni fyrir betra loftslagi

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Norrænu menntamálaráðherrarnir hvetja nú,  annað árið í röð, kennara og nemendur á Norðurlöndum til að taka þátt í Norræna loftslagsdeginum.

Markmiðið með loftslagsdeginum er að virkja börn og ungmenni til að leggja sitt á vogarskálarnar í  í baráttunni  gegn loftslagsbreytingum.

Efnt er til samkeppni fyrir alla aldurshópa, teiknisamkeppni fyrir yngstu nemendurna og hugmyndasamkeppni fyrir þá eldri,  þar sem nemendur eru hvattir til að skrifa eða gera kvikmyndir um loftslagsbreytingarnar.

Lokafrestur til að skila framlögum í samkeppnina er 11. nóvember.

Skólar og aðrir eru hvattir til að efna til viðburða  og deila hugmyndum og tillögum á gagnvirkri vefsíðu klimanorden.org

Loftslagsdagurinn verður þannig haldinn hátíðlegur allt haustið, sem nær hátindi þann 11. nóvember, en þá verða vonandi efnt til fjölmargra viðburða tengdum deginum vítt og breitt um Norðurlönd.

 

Nánar á vefsíðunni klimanorden.org

Tengiliðir

Michael Funch
Sími +45 33960332
Tölvupóstur mifu@norden.org

Emelie Barbou des Places
Sími +45 29 69 29 38
Tölvupóstur emca@norden.org

Tengt efni
  • Þekking skólabarna könnuð á Norræna loftslagsdeginum (News Item)

    Í tilefni af Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember, stendur Norræna ráðherranefndin fyrir sameiginlegum loftslagsdegi fyrir skólabörn á Norðurlöndum þann 11. nóvember. Nemendurnir taka þátt í því sem e.t.v verður stærsta sms-keppni í heimi og koma með tillögur um hvernig hægt er að leysa loftslagsvandann þar sem þeir búa.