Document Actions

Norrænn loftslagsdagur verður endurtekinn árið 2010

Norræna ráðherranefndin hefur ákveðið að endurtaka verkefnið Norræna loftslagsdaginn, fyrir nemendur skóla á öllum Norðurlöndunum fimm. Norræni loftslagsdagurinn verður aftur þann 11. nóvember. Jafnframt hefur verið ákveðið að loftslagsmál verði þema Nordplus áætlunarinnar, en hún nær til Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.

16/02 2010

Norræna ráðherranefndin og norrænu menntamálaráðherrarnir skipulögðu viðburði fyrir alla skóla á Norðurlöndum í tengslum við norrænar aðgerðir vegna loftslagsráðstefnunar COP15.

Viðburðurirnir fólust meðal annars í sms-samkeppni og fjölda annarra verkefna á Norræna loftslagsdeginum, 11. nóvember.

Loftslagsmál verða aftur í brennidepli í kynningarherferðinni, sem ýtt verður úr vör að loknum sumarleyfum. Hátindur verkefnisins verður þann 11. nóvember.

Norræna ráðherranefndin setti upp vefsíðu fyrir Loftslagsdaginn 2009, en síðan á að virka sem hvatningar- og þekkingarvettvangur milli Norðurlandanna, nánari upplýsingar eru á klimanorden.org

Á vefsíðunni klimanorden.org er hægt að gerast áskrifandi að fréttabréfi, þar sem nánari upplýsingar verða birtar um Norræna loftslagsdaginn eftir því sem verkefnið þróast.

Nordplus áætlunin tekur einnig þátt í verkefninu í ár.

Nordplus umsóknarfrestur rennur út 1. mars. Loftslagsmál er eitt af þeim þemum sem sett verða í forgang.