Norrænn matur á stærstu sýningu heims á vistvænni vöru
Um þessar mundir er verið að kynna norræna matargerð á BioFach , stærstu sýningu á vistvænni matvöru sem haldin er, í Nürnberg í Þýskalandi. Norræna ráðherranefndin fjármagnar kynninguna að hluta en sýningin BioFach 2010 stendur dagana 17. - 20. febrúar. Markmiðið er að gestir fái að bragða á norrænum mat, auk þess að skapa ný tengsl og stuðla að auknum útflutningi á norrænum matvælum.
Árlega heimsækja um 50.000 gestir BioFach sýninguna, en framleiðendur sem sýna þar eru um 2.500. 47 norræn fyrirtæki sýna þar saman, þar sem norrænt matborð dregur marga til sín. Þrír kunnir matreiðslumistarar frá Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð bjóða gestum og gangandi upp á norræna rétti úr vistvænu hráefni.
Styrkur Norrænu ráðherranefndarinnar til þessa verkefnis nemur 400.000 dönskum krónum. Auk Norrænu ráðherranefndarinnar styrkja stofnanir frá Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð norrænu kynninguna.
Norrænni matargerðarlist er stundum lýst sem næstu stóru tískubylgjunni í matargerð í heiminum. Norðurlöndin hafa unnið saman að þeirri markaðssetningu, þá ekki síst í gegnum áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar; Nýja norræna matargerðarlist. Markmið hennar er að vekja athygli á norrænni matargerðarlist og efla útflutningshæfni norrænna fyrirtækja.
Áætlunin Ný norræna matargerðarlist var hleypt af stokkunum árið 2006, og henni lýkur um næstu áramót. Norrænu ríkisstjórnirnar hafa hins vegar ákveðið að halda henni áfram til ársins 2014, vegna þeirrar velgengni sem hún hefur notið.
IFOAM, alþjóðlega samvinnustofnunun um vistvænan landbúnað og eftirlit, stendur fyrir BioFach ráðstefnunni.
Tengiliðir
Mads Randbøll Wolff
Sími
+45 33 96 02 56
Tölvupóstur
mrw@norden.org
