Norrænn stuðningur við nýja stofnun jafnréttismála hjá Sameinuðu þjóðunum
Norðurlöndin munu styðja nýja stofnun innan Sameinðu þjóðanna sem mun vinna að jafnréttismálum og því að styrkja stöðu kvenna. Þetta kom fram í ræðum norrænna jafnréttisráðherra á kvennaráðstefnunni (CSW54) og þegar þeir tóku þátt í norrænni námstefnu hjá Sameinuðu þjóðunum 2. mars.
Jafnréttisráðherrarnir lýstu yfir stuðningi við stofnun jafnréttisstofnunar innan Sameinuðu þjóðana þegar þeir tóku þátt í pallborðsumræðum á CSW54 á þriðjudag. Baráttan gegn ofbeldi á konum var annað málefni sem allir norrænu ráðherrarnir töluðu um. Þemað er ofarlega á dagskrá í norrænum jafnréttismálum.
Fulltrúar Norðurlanda þau Stefan Wallin frá Finnlandi, Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra Íslands, Audun Bjørlo Lysbakken frá Noregi, Nyamko Sabuni frá Svíþjóð og Kira Appell ráðgjafi danska jafnréttisráðherrans kynntu norrænar niðurstöður og áskoranir í jafnréttismálum frá því að kvennaráðstefnan var haldin í Peking árið 1995.
Baráttan gegn ofbeldi gegn konum og mansal vakti mikla athygli á norrænu námstefnunni á þriðjudag. Þessi vandamál eru enn stór og óleyst vandamál á Norðurlöndunum og annars staðar í heiminum.
„Ofbeldi gegn konum er málefni sem varðar lýðræði", sagði Nyamko Sabuni við fullan sal áheyrenda hjá Sameinuðu þjóðunum á þriðjudag.
Bæði sænski og íslenski jafnréttisráðherrann bentu á fæðingarorlof sem mikilvæga undirstöðu þess að jafnrétti hafi náð jafn langt á Norðurlöndum og raun ber vitni.
„Íslenska líkanið með feðrakvóta gefur körlum tækifæri á því að axla meiri ábyrgð heima fyrir og á fjölskyldunni. Og hefur einnig í för með sér nýja áskorun sem við höfum ekki fundið lausn á ennþá, að afnema launabilið sem er á milli karla og kvenna", sagði Árni Páll Árnason á þriðjudag.
Norski jafnréttisráðherrann taldi það að beina sjónum á karla vera mikið framfaraskref í jafnréttisstarfinu á Norðurlöndunum og sagði að hann vildi auka norska feðrakvótann.
Finnski ráðherrann, Stefan Wallin, lagði áherslu á mikilvægi þess að koma í veg fyrir myndun staðalímynda varðandi menntun, störf og kynjahlutverk meðal barna og ungmenna.
„Það er mikilvægt að kenna stúlkum og piltum, konum og körlum að enginn á að þurfa að fylgja staðalímyndum", sagði Wallin á þriðjudag.
Danir beindu sjónum að því að kynjaskiptur mennta- og vinnumarkaður hefði úrslitaáhrif á jöfn tækifæri kvenna og karla jafnt í fjölskyldulífi og á vinnumarkaði.
Jöfn tækifæri og fjárhagslegt sjálfstæði skiptir sköpum ef koma á jafnrétti milli kvenna og karla í samfélaginu. Við eigum að nýta alla hæfileika, sagði Kira Appel, ráðgjafi danska jafnréttisráðherrans.
Norræna jafnréttisnefndin sá um námstefnuna hjá Sameinuðu þjóðunum þriðjudaginn 2. mars. Föstudaginn 5. mars verður haldin norræn sérfræðinganámstefna undir yfirskriftinni: Áskoranir og árangur af norrænni jafnréttisstefnu síðan kvennaráðstefna Sameinuðu þjóðanna var haldin í Peking árið 1995. CSW54 ráðstefnan er haldin í tilefni þess að nú eru 15 ár frá ráðstefnunni í Peking.
