Norrænt fiskveiðisamstarf á alþjóðavettvangi
Norðurlöndin eiga að styrkja stöðu sína í alþjóðlegu fiskveiðisamstarfi, ekki síst á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Með náinni samvinnu við Matvæla og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) má ná miklum árangri. Þetta kemur fram í skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar sem heimsótti FAO.
Sendinefndin sem skipuð var norrænum sérfræðingum í fiskveiðum, hitti m.a. Ichiro Nomura sem fer með yfirstjórn sjávarútvegsmála hjá FAO en hann hefur óskað eftir nánari samstarfi milli Norðurlanda og FAO.
Norrænt fiskveiðisamstarf á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar snýst um svipuð málefni og unnið er að í fagráðum FAO, t.d. loftslagsmál, erfðaauðlindir, rekjanleika vöru og fiskveiðistjórnun á hafsvæðum. Báðir aðilar geta því notið góðs af samstarfinu.
Norræna ráðherranefndin hefur í dag rétt til að taka til máls á fundum FAO þar sem fjallað er um fiskveiðar. Hingað til hefur ráðherranefndin einungis nýtt þann rétt með takmörkuðum hætti til að greina frá reynslu og sjónarmiðum Norðurlanda en getur með virkari þáttöku verið sýnilegri í þessu alþjóðasamstarfi.
Norrænt fiskveiðisamstarf hefur á margan hátt beinst að umheiminum, ekki síst að Evrópusamstarfi. Norræna ráðherranefndin, sem er samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna, hefur t.d. tekið virkan þátt í endurskoðun á sjávarútvegsstefnu ESB sem fer fram um þessar mundir. Ný fiskveiðistefna ESB á samkvæmt áætlun að ganga í gildi árið 2013.
