Document Actions

Norrænt kerfi um skilagjald nauðsynlegt

Á sumrin ferðumst við um norrænu ríkin og grannríkin þver og endilöng. Við tökum með okkur mikið af flöskum og dósum en höfum þær ekki með til baka. Um þessar mundir eru meira en 1 milljarður áldósa á Norðurlöndum sem ekki falla undir skilagjaldskerfið, því þær eru keyptar í grannríki. Í skýrslu sem unnin var af Jan Rehnberg, ráðgjafa og fyrrverandi framkvæmdastjóra Returpack í Svíþjóð, kemur fram að ekki er samstaða um sameiginlegt norrænt skilagjaldskerfi.

Jul 06, 2010
Genbrug

„Við getum ekki sætt okkur við að fólk hendi tómum dósum út í náttúrunni, og þess vegna verður að finna lausn á þessu mikla vandamáli fyrir umhverfið og neytendur”, segir Ann-Kristine Johansson.

Ljósmyndari
Sigurður Ólafsson/norden.org

Umhverfis- og auðlindanefnd Norðurlandaráðs er afar óánægð með þess niðurstöðu.
„Við getum ekki sætt okkur við að fólk hendi tómum dósum út í náttúrunni, og þess vegna verður að finna lausn á þessu mikla vandamáli fyrir umhverfið og neytendur”, segir Ann-Kristine Johansson, formaður umhverfis- og auðlindanefndar Norðurlandaráðs og þingmaður Jafnaðarmanna í sænska þinginu.

Norrænn samstarfsvettvangur um kerfishindranir bað Rehnberg að kanna möguleika á því að koma á fót sameiginlegu skilagjaldskerfi. Rehnberg leggur þess í stað til að gerðir verði tvíhliða samningar milli ríkja, t.d. milli Danmerkur og Þýskalands, þar sem stór hluti umbúðanna komi frá grannríkinu.

„Umbúðir eru vandamál óháð landamærum, rétt eins og CO2 mengun, og þess vegna verðum við að finna lausn sem nær til allra norrænu ríkjanna”, segir Ann-Kristine Johansson, sem nú vill þrýsta á norrænu ríkisstjórnirnar um að þær láti gera nothæft líkan að sameiginlegu skilagjaldskerfi.

Tengt efni