Norrænt kvikasilfursamstarf fær hrós
Samstarf norrænu ríkjanna um notkun kvikasilfurs hefur vakið mikla athygli á kvikasilfursráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Stokkhólmi. Ráðstefnugestir hvaðanæva að úr heiminum hafa lokið lofsorði á Norðurlönd fyrir þátt þeirra og Norrænu ráðherranefndarinnar í því starfi að draga úr notkun kvikasilfurs.
Norðurlönd hafa m.a. verið fyrirmynd í notkun kvikasilfurs í tannvernd. Fyllingar sem innihalda kvikasilfur verða sífellt sjaldséðari á Norðurlöndum, en þar eru Svíar fremstir í flokki því þeir bönnuðu notkun kvikasilfur í tannviðgerðum árið 2009.
Einn þeirra sem hrósa aðgerðum Norðurlanda er Anita Vasquez Tibau, framkvæmdastjóri samtaka sem berjast fyrir því að banna silfurfyllingar í tönnum, m.a. í Bandaríkjunum.
- Þið eruð með lausnirnar, þið hafið notað þær, nú þurfum við hin að leika það eftir, segir Tibau.
Anita Vasquez Tibau er ein af rúmlega 400 fulltrúum sem taka þátt í fyrsta samningafundi Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlega bindandi samning um takmörkun á notkun kvikasilfurs. Ráðstefnan, sem stóð yfir dagana 7.-11. júní í Stokkhólmi, er fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni, samstarfsvettvangi norrænu ríkisstjórnanna. Samningaviðræðurnar fara fram innan ramma UNEP, umhverfisáætlunar Sameinuðu þjóðanna.
Kvikasilfurráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Stokkhólmi
