Norrænt menningastarf endurbætt eftir viðræður við greinarnar
Endurbætur á endurskipulagningu menningarmálaráðherrana á norrænu menningarsamstarfi standa fyrir dyrum.
Ákvörðun ráðherranna felur meðal annars í sér, að í framtíðinni verður auknu fjármagni úr Lista- og menningaráætluninni varið til að styrkja áhugalistamenn á Norðurlöndunum. Ráðherrarnir ákváðu þetta á fundi sínum á fimmtudag á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi.
Gott samráð milli menningarmálaráðherrana og menningarlífsins á Norðurlöndunum leiddi til breytinga á aðeins fjögurra ára gamalli menningaráætluninni. Í því ferli skoðuðu ráðherrarnir sérstaklega lista- og listamannastyrki. Í framtíðinni munu ekki einvörðungu lærðir listamenn og listiðkendur njóta styrkja menningaráætlunarinnar. Breytingarnar fela í sér aukinn aðgang að styrkjum fyrir alla á menningarsviðinu.
Í þessu sambandi lögðu ráðherrarnir áherslu á mikilvægi þess að viðhalda gæðum í norrænum lista- og menningarverkefnum.
Með þessu koma ráðherrarnir til móts við menningarlífið, eftir fjölmarga fundi, þar sem listamenn og listiðkendur hafa meðal annars lýst eftir skýrari alþýðlegri tengingu í norræna menningarsamstarfinu og meira jafnvægi milli lítilla og stórra listgreina. Með það að markmiði að leggja áherslu á þetta jafnvægi ákváðu ráðherrarnir jafnframt í dag að breyta nafni áætlunarinnar í Menningar- og listaáætlun.
Ráðherrarnir leggja einnig áherslu á skýra tengingu milli áætlunarinnar og pólitískrar forgangsrögðunar ráðherranna sjálfra í menningarsamstarfi í framtíðinni.
Norrænn tungumálaskilningur er einnig ofarlega á forgangslistanum. Norrænu menningarmálaráðherrarnir samþykktu því einnig í dag, að Norræni þýðingarsjóðurinn skyldi fluttur frá skrifstofu Menningargáttarinnar til menningarstofnunarinnar Norræna hússins.
Endurskipulagning norræna menningarsamstarfsins verður metin í heild á árinu 2010.
Endurskipulagning menningarráðherranna á norrænu menningarsamstarfi á að gera starfið sveigjanlegra og virkara, og opna það nýjum þátttakendum og samstarfsformum auk þess að undirbúa samstarfið undir að mæta nýjum úrlausnarefnum á þjóðlegum og alþjóðlegum vettvangi.
Tengiliðir
Anna Enemark
Sími
+45 29 69 29 23
Tölvupóstur
anen@norden.org
