Forsetaþríeyki, fundir þingmanna með almenningi og þríhliða fundir forseta, ráðherranefndar og nefndarformanna að loknu þingi Norðurlandaráðs. Þetta gæti orðið veruleiki þegar Norðurlandaráð hefur verið fært í nútímabúning.
Skilvirkni, hreinskiptni og nánara samstarf við ráðherrana eru lykilorðin í áfangaskýrslu um hugmyndir að breyttum starfsháttum Norðurlandaráðs. Skýrslan sem unnin er af sérstökum starfshópi á vegum ráðsins var kynnt á fundi forsætisnefndarinnar sem fram fór fimmtudaginn 31. mars í Stokkhólmi.
Forsetaþríeyki að fyrirmynd Evrópusambandsins skipað sitjandi forseta Norðurlandaráðs, fráfarandi forseta og forseta komandi árs gæti stuðlað að betri samfellu í starfi ráðsins að mati starfshópsins.
Hann telur að efla beri tengsl ráðsins við ríkisstjórnir landanna, þjóðþingin og þingflokka þeirra. Þá beri að samræma betur þau mál sem fjallað er um í Norðurlandaráði annars vegar og í þjóðþingunum hins vegar. Eins þurfi ráðið að efla samskipti sín við ríkisstjórnir landanna.
Þríhliða fundir ráðsforseta, ráðherranefndar og nefndarformanna að loknu Norðurlandaráðsþingi á ári hverju þar sem fjallað er um helstu ákvarðanir sem teknar voru á nýafstöðnu þingi geti stuðlað að meiru samráði við þjóðríkin.
Þá er bent á mikilvægi þess að þingmenn sinni samskiptum við almenning. Lagt er til að komið verði á viðtalstímum hjá nefndum Norðurlandaráðs þannig að einstaklingar eða hagsmunaaðilar geti beðið um áheyrn ef þeir óska eftir að kynna sjónarmið sín í tilteknum málum. Slíkar starfsreglur gilda hjá danska þjóðþinginu.
Starfshópurinn leggur til að Norðurlandaráð víkki sjóndeildarhring sinn í alþjóðlegu samstarfi. Ráðið hefur löngum lagt áherslu á samstarf við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland en nú sé tímabært að beina einnig sjónum að sviðum sem mál nefndanna varða beint. Sem dæmi um mikilvæga aðila fyrir starf Norðurlandaráðs nefna höfundar Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar.
Þá telja þeir að hverfa þurfi frá þeirri reglu Norrænu ráðherranefndarinnar sem kveður á um einróma samkomulag. Völd embættismannanefnda ráðherranefndarinnar beri að takmarka og komi þar upp ágreiningur skuli leggja hann á borð stjórnmálamannanna.
Henrik Dam Kristensen forseti Norðurlandaráðs sagði á fundi forsætisnefndarinnar í Stokkhólmi fimmtudaginn 31. mars að hann liti björtum augum á ferlið og fagnaði því hvað verkið er langt á veg komið. Starfshópurinn vinnur nú áfram að gerð skýrslunnar og verður hún væntanlega samþykkt á sumarfundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs sem fram fer í Brussel í lok júní.
Tina Bostrup
Sími
+45 24 69 94 52
Tölvupóstur
tib@norden.org