Document Actions

Norrænt samstarf má ekki verða fyrir fáa útvalda

Alþýðleg fótfesta er kjarninn í norrænu samstarfi og styrkurinn á bak við sameiginlegar aðgerðir á Norðurlöndum Hnattvæðingarferlið má ekki færa kastljósið frá lýðræðislegum grunni samstarfsins. Þetta voru niðurstöður almennra umræðna á Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi þann 28.október 2009.

28/10 2009
Line Barfod

- Við verðum að fá svör við þeim spurningum sem við beinum til ráðherranna og skrifstofu ráðherranefndarinnar, og tímanlega. Annars getum við ekki unnið okkar starf”, sögðu Line Barfod og margir aðrir þingmenn í umræðunum.

Ljósmyndari
Foto: Magnus Fröderberg/norden.org

Það er hætta á að norrænt samstarf þynnist, ef ekki er borin virðing fyrir hinum lýðræðislega og alþýðlega grunni,sögðu fleiri stjórnmálamenn í tengslum við umræður um skýrslu samstarfsráðherranna og fjárhagsáætlun ráðherranefndarinnar á þingi Norðurlandaráðs.

„Hnattvæðingarstarfið er gott dæmi. Það varð undirstaða mikilvægrar kortlagningar á norrænum gildum og tækifærum í hnattvæddum heimi. En á vegum ráðherranefnarinnar verður þessi vinna eingöngu að leiðtogafundum, án tenginga við félög, umhverfishreyfingar og verkalýðshreyfinguna”, sagði Line Barfod frá Danmörku.

Mogen Jensen formaður menningar- og menntamálanefndarinnar bætti við:

Á vegum ráðherranefnarinnar verður þessi vinna eingöngu að leiðtogafundum, án tenginga við félög, umhverfishreyfinguna og verkalýðshreyfinguna.

„Það tókst að fá fjármagn til menningar í hnattvæðingarstarfinu, en þeir voru nýttir til að fjármagna dýr sýningarverkefni í stað sköpunarverkefna til að mynda fyrir börn og ungt fólk, eins og nefndin hefði viljað. Við höfum um árabil reynt að efla samræðuna við ráðherrana, en verðum að viðurkenna að við höfum mjög lítil áhrif á dagskrá ráðherranefndarinnar”, sagði Mogen Jensen.

Vilja meiri upplýsingar

Bæði Barfod og Jensen sögðu það slæmt, að ár eftir ár væri skorið niður í því samstarfi sem byggir á alþýðlegum og menningarlegum gildum.

Þingmennirnir vildu nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og krefjast þess að ráðherrarnir ræði meira við nefndir Norðurlandaráðs þegar norræn verkefni eru skilgreind.

„Við verðum að fá svör við þeim spurningum sem við beinum til ráðherranna og skrifstofu ráðherranefndarinnar, og tímanlega . Annars getum við ekki unnið okkar starf”, sögðu Line Barfod og margir aðrir þingmenn í umræðunum.