Document Actions

Norrænt skilagjaldskerfi getur orðið fyrirmynd í ESB

Sameiginlegt skilagjaldskerfi í norrænu ríkjunum mun ekki einungis gagnast umhverfinu og neytendum á Norðurlöndum. Það getur einnig eflt undirbúning framkvæmdastjórnar ESB að evrópsku kerfi og mögulega verður hægt er að flytja út norrænar lausnir til annarra ríkja í Evrópu.

21/09 2010

Ríkisstjórnir norrænu ríkjanna ættu að leggja aukna áherslu á undirbúning norræns skilagjaldskerfis, ekki síst til þess að efla evrópskt samstarf á þessu sviði. Norðurlandaráð fjallaði um málið á septemberfundum sínum sem haldnir eru í Málmey dagana 21.-22. september.

Verslun á landamærasvæðum er meginástæða þess að sameiginlegra aðgerða er þörf. Samkvæmt Jan Rehnberg, fyrrverandi framkvæmdastjóra Svenska Returpack, eru árlega fluttar inn einn milljarður dósa, frá Þýskalandi og Eistlandi einum saman.

Vandamálið er því ekki einungis svæðisbundið heldur evrópskt.

Dönsku náttúrurverndarsamtökin söfnuðu nær 200.000 dósum á árlegum sorpsöfnunardegi sínum árið 2010, 40.000 fleiri en árið 2009.

Þetta dæmi bendir til vaxandi vandamáls án tillits til landamæra.

„Við getum verið ánægð með að það skuli vera til staðar kerfi í hverju landi fyrir sig, en tími er kominn til að ganga lengra. Og við erum með norrænt kerfi sem er góð undirstaða fyrir evrópskt átak", segir Ann-Kristine Johansson formaður umhverfisnefndar Norðurlandaráðs.

Norrænir bjórframleiðendur efast um sameiginlegt skilagjaldskerfi, en samkvæmt Jan Rehnberg er tæknilega gerlegt að láta þau kerfi sem þegar eru til staðar vinna saman milli landa.

En málið tengist ekki eingöngu umhverfis- og atvinnustefnu, heldur einnig neytendastefnu.

„Það eiga einfaldlega ekki að vera landamærahindranir á sviði skilagjalds á Norðurlöndum. Það er ekki gott fyrir umhverfið og þess vegna er það einnig neytendamál", segir Martin Kolberg sem situr í borgara- og neytendanefnd Norðurlandaráðs.

Nefndin hvetur ásamt umhverfis- og atvinnumálanefndinni ríkisstjórnirnar til að finna norræna lausn á skilagjaldsvandanum, með það að markmiði að skapa breiðari evrópska lausn.

Nefndirnar vilja raunhæfa og ódýra lausn sem gagnast bæði umhverfinu og neytendum og munu þær fjalla um málið á Norðurlandaráðsþingi á Íslandi í nóvember.

Tengiliðir

Michael Funch
Sími +45 33960332
Tölvupóstur mifu@norden.org

Tengt efni
  • Norðurlandaráð

    Norðurlandaráð er opinber starfsvettvangur þingsamstarfs á Norðurlöndunum.

  • Fundur í Norðurlandaráði, 21.- 22. september 2010, í Málmey, Svíþjóð (Event)
  • Norrænt kerfi um skilagjald nauðsynlegt (News Item)

    Á sumrin ferðumst við um norrænu ríkin og grannríkin þver og endilöng. Við tökum með okkur mikið af flöskum og dósum en höfum þær ekki með til baka. Um þessar mundir eru meira en 1 milljarður áldósa á Norðurlöndum sem ekki falla undir skilagjaldskerfið, því þær eru keyptar í grannríki. Í skýrslu sem unnin var af Jan Rehnberg, ráðgjafa og fyrrverandi framkvæmdastjóra Returpack í Svíþjóð, kemur fram að ekki er samstaða um sameiginlegt norrænt skilagjaldskerfi.

  • Sameiginlegt norrænt skilagjaldskerfi fyrir flöskur? (News Item)

    Norðurlönd ættu að taka upp sameiginlegt skilagjaldskerfi fyrir flöskur og dósir. Þetta var skoðun margra þingmanna sem funduðu í Kaupmannahöfn á föstudag. Sameiginlegt skilagjaldskerfi myndi fyrst og fremst bæta umhverfið – miklu magni af flöskum og dósum er hent út í náttúruna ár hvert og einnig með heimilissorpi.

  • Flera modeller för nordiskt pantsystem (News Item)

    Det finns förutsättningar för ett gemensamt pantsystem för flaskor och burkar i de nordiska länderna. Jan Rehnberg, konsult och tidigare vd för Svenska Returpack, gav på onsdagen alternativ till hur ett sådant pantsystem kunde genomföras i praktiken. Rehnberg redogjorde för sin utredning för parlamentariker på Nordiska rådets januarimöten i Köpenhamn.