Norrænt stjórnvald til að vernda hafið
Norrænu ríkisstjórnirnar settu í gær á laggirnar nýjan vinnuhóp sem á að leggja fram tillögur um verndun hafsins. Norðmaðurinn Tore Riise frá sjávarútvegs- og strændgæsluráðuneytinu er formaður hópsins. Hópurinn á að setja saman tillögur Norðurlanda að sameiginlegri evrópskri stefnu um verndun sjávar og á hún að ná til allra sviða sem snúa að umhverfi hafsins.
Á meðan stjórnvöld í Kanada og öðrum ríkjum nota hugtakið
”Ocean Governance”, sem mætti kannski þýða som sjávarstjórnun, notar Evrópusambandið hugtakið sjávarstefnu um verndun sjávar. Norrænu ríkin sem eiga aðild að Evrópusambandinu og hin sem eru á evrópska efnahagssvæðinu hafa nýlega lagt fram tillögur landanna í svokallaða grænbók Evrópusambandsins um sjávarstefnu.
Ég er afar ánægður með að þessum hóp hefur verið komið á laggirnar þannig að við getum gert stefnu Norðurlanda á þessu sviði sýnilega.
Norrænu ríkin geta lagt fram víðtæka þverfaglega þekkingu sem er hægt að nýta í stefnumótun um sjávarvernd á evrópskum vettvangi og við getum betur kynnt sameiginleg sjónarmið, segir Bo Lindroos deildarstjóri umhverfis- og auðlindadeildar hjá Norrænu ráðherranefndinni þegar vinnuhópurinn kom saman í fyrsta sinn.
Sjálfbær þróun er hugtak sem er rauður þráður í evrópskri sjávarstefnu, þar sem lögð er áhersla á bæði á verndun hafsins og fiskveiðar. Markmiðið er að allar atvinnugreinar sem tengjast sjávarútvegi eigi kost á að vaxa, um leið og tekið er tillit til líffræðilegs fjölbreytileika, loftslags og umhverfisverndar almennt. Sjávarstefna Evrópusambandsins er umhverfisverndarstefna sem nú hefur verið gefin út í formi tilskipana.
