Document Actions

Norrænt verkefni kemur ungum afbrotamönnum á rétta braut

Átta ungir afbrotamenn frá Norðvestur-Rússlandi á aldrinum 15 til 17 ára hafa hafið nám og tveir hafa fengið atvinnu. Það er eitt af því sem kom út úr tilraunaverkefni á vegum Juvenlie Justice, sem er eitt af mörgum verkefnum sem Norræna ráðherranefndin vinnur með frjálsum félagasamtökum (NGO) í ríkjunum við Eystarsalt.

26/11 2010
Skateboard
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Frjáls félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland.

Í tilraunaverkefninu þar sem unnið er með ungum afbrotamönnum, hefur hjálparstofnun kirkjunnar í Danmörku með stuðningi frá Norrænu ráðherranefndinni, ýtt úr vör samstarfi stjórnvalda og frjálsra félagasamtaka í Norðvestur-Rússlandi til þess að bæta kjör ungra afbrotamanna. Tildrög þessa umfangsmikla verkefnis er sá mikli fjöldi ungs fólks sem situr í rússneskum fangelsum og slæmur aðbúnaður ungra afbrotamanna.

Tíu ungmenni á aldrinum 15-17 ára fengu að afplána dóma utan fangelsis á meðan þau tóku þátt í tilraunaverkefninu.

- Markmiðið með verkefninu var að byggja upp þekkingu og getu stjórnvalda og félagasamtaka á umönnun ungs afbrotafólks til þess að bæta og tryggja réttindi þess í dómskerfinu, segir Kristine Vadskær hjá Hjálparstofnun dönsku kirkjunnar.

Með norrænni þekkingu, reynslu og aðstoð hefur verkefnið borið árangur hjá þeim ungmennum sem tóku þátt í því. Tveir fengu vinnu og átta hófu nám. Aðeins tveir af þeim leiddust út í glæpi á ný og sitja nú í fangelsi.

- Raunverulegar breytingar og aðgerðir hafa komið í veg fyrir glæpi og tryggt ungum afbrotamönnum í Norðvestur-Rússlandi ráttláta málsmeðferð í dómskerfinu segir Kristine Vadskær frá Hjálparstofnun kirkjunnar.

Vadskær telur að verkefnið stuðli að opnum skoðanaskiptum milli stjórnvalda og frjálsra félagasamtaka. Að auki hefur það stuðlað að auknu þverfaglegu samstarfi um hvernig megi hlúa að ungum brotamönnum.

-Enginn vafi leikur á því að verkefnið hefur átt þátt í að skapa betri umgjörð og skilning á þróuninni í umönnun ungra afbrotamanna og á réttindum ungs fólks, segir Vadskær.

Norræna ráðherranefndin setti árið 2006 á laggirnar áætlun fyrir frjáls félagasamtök með það að markmiði að efla samstarf þeirra á Norðurlöndum, í Eystrasaltsríkjunum, Póllandi, Hvíta-Rússlandi og Rússlandi. Síðan hafa meira en 40 verkefni fengið styrki að upphæð 18 milljónum norskra króna á sviði umhverfismála, umönnun barna og annarra jaðarhópa og lýðræðisuppbyggingar.

- Hjálparstofnun kirkjunnar hefur um árabil starfað með áætlun Norænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagssamtök, segir Kristine Vadkær.

Hún ítrekar að skilningur stjórnenda áætlunarinnar á þeim úrlausnarefnum sem geta komið upp við framkvæmd þessarar gerðar verkefna, þar sem þátttaka og samstarf stjórnvalda og frjálsra félagasamtaka er mikilvægt, hafi hjálpað mikið og gagnast við framkvæmdina.

Auglýst verður eftir umsóknum í áætlunina árið 2011.

Tengiliðir

Fredric Larsson
Sími +45 33 96 03 27
Tölvupóstur frla@norden.org

Tengt efni
  • Ný styrkjaáætlun fyrir frjáls félagasamtök (News Item)

    Norræna ráðherranefndin kynnir í dag til sögunnar nýja styrkjaáætlun fyrir frjáls félagasamtök (NGO) á Eystrasaltssvæðinu. Markmiðið hennar er að styrkja og hvetja til svæðisbundins félagasamstarfs.

  • Samstarf frjálsra félagasamtaka. Nú er hægt að sækja um norræna styrki (News Item)

    Á hverju vori er að sækja um verkefnastyrki hjá áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagasamtök. Krafa er gerð um að a.mk. þrjú frjáls félagasamtök taki þátt í verkefninu og að ein samtök séu norræn, ein frá Rússlandi, Hvíta-Rússlandi, Póllandi eða Eystrasaltsríkjunum.

  • Hur man ansöker om finansiering: NGO-programmet

    En årlig budget på cirka 5 miljoner danska kronor har öronmärkts för Nordiska ministerrådets program för NGO:er i Östersjöområdet (NGO-programmet). NGO:er bjuds in att ansöka om finansiering från programmet för internationella samarbetsprojekt. De sökande bör läsa NGO-programmet innan de skickar in en ansökan om finansiering.

  • Norræna ráðherranefndin
  • Samarbete med frivilligorganisationer

    Frivilligorganisationer har en framträdande roll i Nordiska ministerrådets samarbete med de baltiska länderna, Nordvästryssland samt Vitryssland, och Nordiska ministerrådet avser att bredda och intensifiera samarbetet. Det gäller framförallt som partners i att bygga kapacitet inom en mängd av Nordiska ministerrådets prioritetsområden, men också som aktörer vilka medverkar i att bygga nätverk och utveckla ministerrådets samarbete i Östersjöregionen mellan frivilligorganisationer och verka för att stärka det civile samhället.