Document Actions

Norrænu atvinnu- og orkumálaráðherrarnir styðja sameiginlegan norrænan neytendamarkað og þróun samstarfs um endurnýjanlega orkugjafa og bætta orkunýtingu í samgöngugeiranum.

Ráðherrarnir vilja að Norðurlöndin verði brautryðjendur í sjálfbærri atvinnu- og orkumálastefnu. Norðurlönd eiga að vera í fararbroddi í Evrópu hvað varðar umhverfis-skilvirk hagkerfi,sem felur í sér hagvöxt með minna álagi á umhverfið. Sjálfbær neysla og framleiðsla, umhverfistækni, bætt orkunýting og endurnýjanlegir orkugjafar bæta skilyrði fyrir fleiri störfum í fleiri fyrirtækjum í vexti, á sama tíma og við minnkum losun gróðurhúsalofttegunda.

27/10 2009

Fjórðungur CO2-losunar í heiminum er frá samgöngugeiranum, sem notar helming allrar olíu í heiminum. Ráðherrarnir fagna því norrænu samstarfi um áherslur á bætta orkunýtingu og endurnýjanlega og vistvæna orku fyrir samgöngur.

„Með því að þróa þjóðfélagið í átt að „umhverfis skilvirku hagkerfi" sýnum við að sjálfbær atvinnustefna með vistvænum hagvexti er aðferð Norðurlandanna til að auka samkeppnishæfni og jafnframt takast á við úrlausnarefni á sviði loftslags- og orkumála. Við verðum að halda áfram að vinna að sjálfbæru samgöngukerfi, segja ráðherrarnir.

Þetta verður að skoða í ljósi hinnar mikilvægu loftslagsráðstefnu í Kaupmannahöfn í desember, þar sem lönd heimsins munu reyna að komast að samkomulagi um nýjan loftslagssáttmála. Danmörk er gestgjafi loftslagsráðstefnunnar og jafnframt fer Svíþjóð með formennsku í ESB og talar því fyrir hönd sambandsins.

Ráðherrarnir fylgdu eftir framkvæmdaáætlun sinni um landamæralausan raforkumarkað sem þeir samþykktu á fundinum í fyrra. Ráðherrarnir ítrekuðu stuðning sinn við sameiginlegan neytendamarkað og samþykktu að halda áfram að stíga skref í þá átt. Lögð verður fyrir ráðherrana ítarleg aðgerðaáætlun um það sem gera þarf, á næsta fundi orkumálaráðherranna.

Ákvörðun ráðherranna um áframhaldandi þróun raforkumarkaðarins kemur fram í viðhengi við þessa fréttatilkynningu (sjá yfirlýsingu að neðan).
Ráðherrafundurinn var haldinn þann 27. október í Stokkhólmi. Íslendingar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2009.

Yfirlýsing frá fundi Norrænu ráðherranefndarinnar um atvinnu-, orku- og byggðamál, Stokkhólmi þann 27. október 2009

Þróunin í átt að landamæralausum raforkumarkaði heldur áfram

Til þess að efla enn frekar stuðning við norræna raforkumarkaðinn er í framkvæmdaáætlun lagður grundvöllur að skilvirkum, landamæralausum og sjálfbærum norrænu raforkumarkaði með öflugri samkeppni og skilvirkri verslun við umheiminn. Framkvæmdaáætlunin var samþykkt á fundi Norrænu ráðherranefndarinnar um orkumál í Umeå árið 2008. Ráðherrarnir ítreka að hina ýmsu hluta framkvæmdaáætlunarinnar frá Umeå 2008 verði að skoða í samhengi og að allir hlutarnir séu jafn mikilvægir.

Framkvæmdaáætlunin fjallar meðal annars um aðgerðir til að auka fjárfestingar í dreifikerfi og hvernig taka skuli á takmörkunum dreifikerfis. Ráðherrarnir hafa fengið upplýsingar um árangur dreifiaðila við að koma á fót fleiri verð/tilboðssvæðum. Aukinn fjöldi verð/tilboðssvæða minnkar þó ekki mikilvægi þess að ráðast í fjárfestingar í dreifikerfi. Ráðherrarnir gera ráð fyrir að fá greiningu raforkumarkaðshópsins á framkvæmd fjárfestinga í dreifikerfum Norðurlandanna á ráðherrafundinum í Danmörku árið 2010. Ráðherrarnir ítreka mikilvægi þess að þær fjárfestingar sem þegar er samkomulag um milli norrænu dreifiaðilanna verði að veruleika. Tímaáætlun vegna þeirra fjárfestinga sem eftir á að leggja í, skal leggja fram við næsta ráðherrafund árið 2010.

Sameiginlegur neytendamarkaður er eðlilegt framhald á þeirri vinnu sem þegar hefur átt sér stað við samþættingu og eflingu norræna raforkumarkaðarins. NordREG telur möguleika á að markaðurinn verði virku árið 2015. Ráðherrarnir ítreka stuðning sinn við sameiginlega norrænan neytendamarkað og fyrir næsta ráðherrafund verður lögð fyrir þá ítarleg aðgerðaáætlun aðgerðir til þess að ná þessu markmiði.

Skipulagsleg þróun innan ESB varpar nýju ljósi á norrænt samstarf og veltir upp spurningunni um hvernig skipulagningu dreifikerfis á Norðurlöndum skuli háttað í framtíðinni. Ráðherrarnir telja að norrænu samstarfi skuli haldið áfram með sama metnaði og áður og eru sammála um að norrænir dreifingaraðilar skuli með reglulegu millibili senda uppfærðar áætlanir um dreifikerfi fyrir norræna markaðinn.

Áhersla á endurnýjanlega orkugjafa er mikil áskorun fyrir orkukerfið. Ráðherrarnir beina því til norrænu dreifingaraðilanna að þeir útbúi áætlun um hvernig skuli taka á auknu magni raforku frá endurnýjanlegum orkulindum sem ekki er hægt að stjórna, út frá kerfisrekstrarasjónarmiði. Óskað er eftir skýrslu um starfið fyrir ráðherrafund næsta ár.