Document Actions

Norrænu forsætisráðherrarnir ræða nýjar áherslur í norrænu samstarfi

Nýjar norrænar áherslur á grænan hagvöxt og velferð til framtíðar eru á teikniborðinu. Dagfinn Høybråten framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar ræðir við norrænu forsætisráðherrana um norrænt samstarf til framtíðar. Viðræður um málið munu fara fram á sumarfundi forsætisráðherranna 16. maí.

16/05 2013

„Þátttaka forsætisráðherranna í norræna samstarfinu undanfarin ár hefur skipt sköpum í þeim árangri sem samstarfið skilar", segir Dagfinn Høybråten framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir fundinn með forsætisráðherrunum.

Ljósmyndari
norden.org/Johannes Jahnsson

Norrænu forsætisráðherrarnir halda árlegan sumarfund sinn í Stokkhólmi dagana 15. og 16. maí, og verður þar rætt um grænan hagvöxt og norrænt velferðarkerfi til framtíðar þar sem skýrsla Dagfinn Høybråten framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar verður lögð til grundvallar.

„Megináhersla Norrænu ráðherranefndarinnar mun á næstu árum verða á þau tvö stærstu úrlausnarefni, sem Norðurlöndin nú standa frammi fyrir. Hvernig tryggjum við velferferðarkerfið þegar harðnar á dalnum og hvernig þróum við hagkerfi okkar á sjálfbæran hátt", sagði Dagfinn Høybråten við undirbúning fyrir fundinn með forsætisráðherrunum.

„Þátttaka forsætisráðherranna í norræna samstarfinu undanfarin ár hefur skipt sköpum í þeim árangri sem samstarfið skilar. Við þróum skýrara og skilvirkara samstarf þar sem unnið er þverfaglega og í samstarfi ráðherranefnda", bætir hann við.

Nýjar áherslur

Meðal verkefna undanfarinna ára er fjöldi verkefna sem styrkja Norðurlöndin gagnvart hnattvæðingunni, þar á meðal norræna öndvegisrannsóknaáætlunin og mikil þátttaka í verkefnum Sameinuðu þjóðanna.

Nú hefur fjölda rannsókna- og tengslanetsverkefna verið ýtt úr vör undir yfirskriftunum „Norðurlönd - leiðandi í grænum hagvexti" og „Sjálfbær norræn velferð".

Það þarf til að mynda að stækka norrænan heimamarkað fyrir byggingar og aðrar byggingaframkvæmdir með því að staðla tæknikröfur, markað sem ætti að verða stökkbretti út í hinn stóra heim. Og það þarf að vinna saman að þróun nýrra velferðarlausna fyrir íbúa Norðurlanda, til að mynda á þeim sviðum þar sem krafist er sérstaklega mikillar umönnunar.

„Óskin er sem fyrr að þróa sameiginlegar lausnir á þeim úrlausnarefnum sem við öll stöndum frammi fyrir. En, segir Dagfinn Høybråten fyrir fundinn með forsætisráðherrunum, við leggjum nú enn frekari áherslu á að efla norrænt samstarf með því að beina sjónum að völdum sviðum.

Forsætisráðherrafundurinn verður haldinn í Stokkhólmi. Þann 16. maí taka forsætisráðherrarnir þátt í stórum vinnumarkaðsfundi þar sem áhersla verður á atvinnuleysi ungs fólks. Norrænu atvinnumálaráðherrarnir taka einnig þátt í þeim fundi, og verður hann sendur út beint á vefsíðunni regeringen.se

Tengiliðir

Bodil Tingsby
Sími +45 33 96 03 57
Tölvupóstur bot@norden.org