Document Actions

Norrænu jafnréttisráðherrarnir: Nýtum kynjasjónarmið í loftslagsbaráttunni

Rætt var um ólík áhrif kynja á loftslagið á fundi norrænu jafnréttisráðherranna þann 21. september í Helsinki. „Jafnrétti kynja er forsenda sjálfbærrar þróunar og viðnáms vegna loftslagsbreytinganna“, sögðu ráðherrarnir á fundinum.

21/09 2011

Ljósmynd: Anna Korhonen

Jafnréttisráðherrarnir ræddu hvernig ólíkir geirar geta nýtt sér upplýsingar sem jafnréttisgeirinn hefur tekið saman um ólíkar athafnar kynja, s.s. neyslu matar,orkunotkun og hreyfingu til að gera baráttuna gegn loftslagsbreytingum skilvirkari. Í nóvember verður opnaður gagngrunnur með þessum upplýsingum.

Loftslagsbreytingar eru meginþema formennskuáætlunar Finna í Norrænu ráðherranefndinni. Norrænu jafnréttisráðherrarnir hafa unnið að málaflokknum síðan 2008. Loftslagsbreytingar eru ekki eingöngu vandamál þróunarríkjanna því afleiðingar þeirra má einnig merkja á Norðurlöndum. T.d. létust fleiri konur en karlar í hitabylgjum seinustu ára í Svíþjóð. Ástæðurnar eru margar og nauðsynlegt er að rannsaka betur tengsl kynferðis og loftslagsmála.

Konur og karlar á Norðurlöndum hafa einnig ólík áhrif á loftslagsbreytingarnar með atferli sínu. Samkvæmt rannsóknum hefur t.d. launamunur karla og kvenna áhrif á frístundastarf og þar með á loftslagið. Karlar nota einkabíla meira, en konur notfæra sér frekar almenningssamgöngur.

Á fundinum var einnig rætt um samþættingu jafnréttissjónarmiða á Norðurlöndum og önnur jafnréttismál sem efst eru á baugi, og viðburði á komandi formennskuári Norðmanna 2012.

Norrænu ráðherraefndinni um jafnréttismál bárust í dag fréttir af andláti Per Unckel, fyrrverandi framkvæmdastjóra ráðsins eftir stutt veikindi. Per Unckel hefur í ævistarfi sínu sýnt norræna samstöðu og samkennd. Við erum sterkara svæði á heimsvísu þökk sé áhuga hans og starfi. Við vottum fjölskyldu hans og ástvinum samúð okkar.

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org

Nánari upplýsingar:

Annamari Asikainen, forstöðumaður í heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytinu, sími +358 50 512 5617, fornafn.eftirnafn@stm.fi Mia Mäkinen, verkefnisstjóri, stofnun um heilsu og velferð (Institutet för hälsa och välfärd) , sími +358 20 610 7261

Tengt efni
  • Ráðherranefnd um jafnrétti (MR-JÄM) (Samtök)

    Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um jafnréttismál er stýrt af jafnréttisráðherrunum, en þeir sitja í ráðherranefnd um jafnréttismál (MR-JÄM). Sameiginleg menning, saga og lýðræðishefðir Norðurlandanna gera þeim kleift að þróa náið og uppbyggilegt samstarf á sviði jafnréttismála.