Document Actions

Norrænu jafnréttisráðherrarnir ræða kynferði og fjármálakreppuna

Áhrif fjármálakreppunnar á konur og karla voru til umræðu á fundi norrænu jafnréttisráðherranna sem haldinn var í Reykjavík fimmtudaginn 5. nóvember.

05/11 2009
De nordiske likestillingsministrene

Þrír af norrænu jafnréttisráðherrunum: Audun B. Lysbakken, Stefan Wallin og Árni Páll Árnason

Ljósmyndari
Silje Bergum Kinsten/ norden.org

Fjármálakreppan hefur haft ólík áhrif á Norðurlöndum og sjálfstjórnarsvæðunum. Hún hefur einnig haft ólík áhrif á konur og karla. Ungt fólk hefur lent í erfiðleikum, sérstaklega ungir karlar, við að komast inn á vinnumarkaðinn. Á fundinum á fimmtudag kynntu norrænu jafnréttisráðherrarnir sér vandamál sem tengjast kynferði og fjármálakreppunni.

"Mikilvægt er að skoða ólík áhrif kreppunnar á karla og konur. Margt bendir til þess að ungir karlar á Norðurlöndum hafi orðið verst fyrir barðinu á fjármálakreppunni á vinnumarkaði. Það er gríðarmikið verkefni að koma þessum ungu körlum aftur út á vinnumarkaðinn. Þetta verður nýjung í jafnréttisstefnu", sagði Árni Páll Árnason jafnréttisráðherra Íslands á fimmtudaginn.

Kreppan hefur ekki einungis haft ólík áhrif á karla og konur sem störfuðu í fjármálageiranum. Lífeyrissparnaður, sem hefur minnkað, lækkun húsnæðisverðs og fjölgun skilnaða, og kynbundið ofbeldi eru einungis nokkur af þeim vandamálum sem koma ólíkt niður á kynjunum í alþjóðlegu fjármálkreppunni.

Ráðherrarnir ræddu einnig mansal, og telja að þörf sé á samræmingu milli fagráðuneyta hvað varðar baráttuna gegn mansali. Þess vegna ætla jafnréttisráðherrarnir að bjóða samráðherrum sínum á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum þremur, sem fara með félags-, dóms- og atvinnumál, til samstarfs í baráttunni gegn mansali.

Meginniðurstöður rannsóknaverkefnisins Kynferði og völd voru einnig kynntar fyrir ráðherranefndinni um jafnréttismál, en þær verða kynntar í heild sinni á stórri norræni ráðstefnu sem haldin verður í Reykjavik 19. nóvember.

Gestir Árna Páls Árnasonar á fundinum voru þau Audun Bjørlo Lysbakken janfréttisráðherra Noregs, Stefan Wallin menningar- og íþróttamálaráðherra Finnlands, Christer Hallerby ráðuneytisstjóri frá Svíþjóð og Marie Hansen framkvæmdastjóri frá Danmörku. Jafnréttisfundurinn var sögulegur þar sem að allir ráðherrarnir þrír voru karlar.