Norrænu ríkin verða hið fyrsta að bregðast við vaxandi ónæmi við sýklalyfjum
Vaxandi ónæmi við sýklalyfjum um heim allan er eitt af þeim vandamálum sem falla undir hugtakið One Health, hugtak sem nær yfir að sjúkdómar í mönnum og dýrum eru nátengdir og ættu að meðhöndlast í samræmi við það. Norðurlandaráð fjallar nú um málið. Liður í þeirri umfjöllun er ráðstefna sem haldin var í Kaupmannahöfn þann 17. maí.
Henrik Dam Kristensen, forseti Norðurlandaráðs, setti ráðstefnuna og sagði að nauðsynlegt að læknar og dýralæknar ynnu saman á mörgum sviðum til þess að vinna gegn sjúkdómum.
– Á Norðurlöndum er sterk hefð fyrir matvælaöryggi, vörnum gegn smitsjúkdómum og hóflegri notkun sýklalyfja. Nauðsynlegt er að miðla reynslu okkar á þessu sviði, þannig að við getum lært meira hvert af öðru, sagði hann enn fremur.
Samræming og markaðssetning á reynslu og þekkingu norrænu ríkjanna getur einnig stuðlað að aukinni samkeppnishæfni þeirra og beint kastljósi annarra þjóða að þessu mikilvæga málefni.
Hugtakið One Health sem nær yfir að heilbrigði og sjúkdómar í mönnum og dýrum séu nátengdir, varð til vegna sivaxandi vandamála m.a. vegna smits lyfjaþolinna sýkla milli dýra og manna, en einnig vegna smits annarra sjúkdóma eins og berkla, salmonellu, hundaæðis og fuglaflensu.
Henrik Dam Kristensen, forseti Norðurlandaráðs, segir um One Health.
Sem framsýnir víkingar ættum við Norðurlandabúar að flytja út reynslu okkar á sviði matvælaöryggis og stefnu í notkun sýklalyfja sagði Jørgen Schlundt, aðstoðar framkvæmdastjóri matvælastofnunar DTU.
ESB hefur bannað vaxtaraukandi sýklalyf í dýrarækt og byggir bannið á reynslu norrænu ríkjanna og vonandi mun það bann taka gildi um allan heim.
Andreas Haddini, frá ReAct - Action on Antibiotic Resistance, fjallaði einnig um hvernig sýklalyf missa hratt virkni sína um þessar mundir, m.a. vegna notkunar sýklalyfja í dýrum, en einnig vegna ofnotkunar meðal manna, en í mörgum ríkjum er hægt að kaupa sýklalyf án lyfseðils. Jafnframt var talað um að engir hvatar væru fyrir lyfjaiðnaðinn að þróa ný sýklalyf.
- Ekki er hægt að hætta notkuni, en takast á við vandamálið með því að halda óþarfri notkun sýklakyfja í lágmarki. Lausnin felst í nýskapandi samstarfi stjórnvalda, almennings og iðnaðarins, sagði Heddini að lokum.
Norðurlandaráð undirbýr fulltrúatillögu þar sem lagt verður til að gerð verði framkvæmdaáætlun um "One Health", þar sem m.a. komi fram tilmæli stjórnvalda, leiðir til að samræma þekkingu og reynslu og áætlun um hvernig Norðurlönd geta stuðlað að því að málefnið og norrænar lausnir komist á dagskrá alþjóðasamfélagsins. Verið er að undirbúa fulltrúatillöguna og verður fjallað um hana á Norðurlandaráðsþingi í Kaupmannahöfn dagana 1.-3. nóvember.
Hægt er að horfa á ráðstefnuna í heild sinni hér.
Tengiliðir
Jenny Pentler
Sími
+45 33 96 0445
Tölvupóstur
jepe@norden.org
