Document Actions

Norskar reglur valda vandræðum á Norðurlöndum

Undanfarið hafa fjölmargir Svíar lent í vandræðum við norræn stjórnvöld. Kent Olsson fulltrúi í forsætisnefnd Norðurlandaráðs hefur því sent fyrirspurn til Rigmor Aasrud samstarfsráðherra Noregs. Hann spyr hver tilgangurinn sé með svo strangri löggjöf gagnvart norrænum ríkisborgurum.

Jul 05, 2010
Kent Olsson

„Bæði þessi tilvik eru dæmi um algjörlega óásættanleg mál sem ganga þvert á það starf og þau gildi sem Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin standa fyrir“, segir Kent Olsson.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

„Markmið norræns samstarfs er að auðvelda frjálsa för milli norrænu ríkjanna. Við viljum að það verði einfaldara að fara yfir landamæri og að hreyfanleiki á Norðurlöndum aukist. Því miður er það ekki raunin“, segir sænski þingmaðurinn Kent Olsson.

Í einu tilfelli gerðu tollayfirvöld í Drammen í Noregi bifreið sænsks ríkisborgara upptæka. Eigandinn þurfti að greiða norskum tollayfirvöldum rúmlega 400.000 norskar krónur til þess að endurheimta bílinn.

Í öðru tilviki lagði sænskur ríkisborgari seglskútu í Mo í Rana og hugðist halda siglingu sinni áfram sumarið eftir. Á sama tíma gengu í gildi norsk lög sem banna erlendum bátum að liggja í norskri höfn í meira en sex vikur í senn. Af þessum völdum skuldaði sænski seglskútueigandinn allt í einu norska ríkinu 250.000 norskar krónur.

„Bæði þessi tilvik eru dæmi um algjörlega óásættanleg mál sem ganga þvert á það starf og þau gildi sem Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin standa fyrir. Ég vil því spyrja hvort norski samstarfsráðherrann hefur íhugað hvaða afleiðingar þetta getur haft fyrir frjálsa för milli Norðurlanda“, segir Olsson.

Kent Olsson er fulltrúi í flokkahópi hægrimanna í Norðurlandaráði.

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org

Tengt efni
  • Starfsmaður gegn stjórnsýsluhindrunum (News Item)

    Norski lögfræðingurinn Helge Kringstad hefur verið ráðinn sérlegur fulltrúi atvinnulífsins í baráttunni gegn stjórnsýsluhindrunum. Samstarfsráðherrar Norðurlanda og ráðherranefndin um atvinnu-, orku- og byggðamál réði hann til starfans fyrir atvinnulífið.