Document Actions

Ný norræn matargerðarlist á elliheimilin

Norðurlandaráð vill nýja norræna matargerðalist frá dýrum veitingahúsum yfir í mötuneyti hins opnbera. Ráðið samþykkti á þinginu í Kaupmannahöfn 1.-3. nóvember að efna til átaks til að kynna almenningi þetta heimsþekkta vörumerki. Átakið miðar einnig að því að spara í heilbrigðiskerfinu.

03/11 2011
Boende

Bráðlega þarf frú Hansen kannski ekki lengur að leita að matseðli með girnilegum norrænum mat.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Venjulega er ný norræn matargerðarlist tengd stjörnuprýddum matreiðslumönnum og dýrum veitingahúsum. En grundvallarreglurnar um heilsusamleg, næringarrík og sjálfbær matvæli sem liggja til grundvallarnýju norrænu matargerðarlistinni geta nú einnig komið frú Hansen á elliheimilinu og Óla litla í skólanum til góða.

Opinberar stofnanir gegna mikilvægu hlutverki við að breiða út hollustu og góða matarmenningu. Þau matvæli sem borin eru fram eiga að vera í hæsta gæðaflokki, næringarfræðileg rétt og umhverfisvæn.

A.m.k. ef Norðurlandaráð fær einhverju ráðið, en það mun fara fram á að ráðherrnefndin endurskoði stefnu sína um nýja norræna matargerðarlist svo hún nái einnig fótfestu í mötuneytum á vegum hins opinbera.

- Opinberar stofnanir gegna mikilvægu hlutverki við að breiða út hollustu og góða matarmenningu. Þau matvæli sem borin eru fram eiga að vera í hæsta gæðaflokki, næringarfræðileg rétt og umhverfisvæn. Og nú á maturinn einnig að vera lystugur svo hann verði borðaður og við komum í veg fyrir sóun á mat, sagði Sonja Mandt (S-Noregi) frá velferðarnefnd Norðurlandaráðs.

Hugsunin er að koma á samstarfi milli framleiðenda og birgja annars vegar og mötuneyta á vegum hins opinbera hins vegar. Að mati þingmanna í Norðurlandaráði er til mikils að vinna, sérstaklega fyrir mötuneyti sjúkrahúsanna.

Rannsóknir sýna að ef matur á sjúkrahúsum er nægilega lystugur og næringarríkur, ná sjúklingarnir mun fyrr heilsu, því þeir borða matinn. Það getur sparað samfélaginu milljarða króna og ný notkun vörumerkis nýrrar norrænar matargerðarlistar gæti til langs tíma orðið útflutningsvara, samkvæmt tillögu flokkahóps jafnaðarmanna í Norðurlandaráði.

Norræna ráðherranefndin hélt nýlega ráðstefnu um nýja norræna matargerðarlist í mötuneytum og öðrum eldhúsum á vegum hins opinbera og er tilbúin til að skoða hugmyndir Norðurlandaráðs.

Tengiliðir

Michael Funch
Sími +45 33960332
Tölvupóstur mifu@norden.org

Tengt efni