Ný norræn skýrsla: Vinna þarf gegn brottfalli strax í upphafi skólagöngu
Allt of margir framhaldsskólanemar ljúka ekki námi. Brottfall þeirra úr skóla er dýrt fyrir samfélagið og ógn við velferðarsamfélag framtíðar. Í nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar er lagt til að gripið verði til aðgerða eins snemma á skólagöngunni og unnt er.
Horfa verður til framhaldsskólans strax, grípa verður til aðgerða eins snemma í leikskólanum og grunnskólanum og unnt er og miða verður námið við forsendur hvers og eins, segir í niðurstöðum nýrrar skýrslu um brottfall.
- Ljósmyndari
- Magnus Fröderberg/norden.org
Í nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar er lagt til að til aðgerða verði gripið eins snemma og unnt er í skólagöngunni, til að koma í veg fyrir brottfall.
Í skýrslunni „Brottfall úr námi hjá 16 - 20 ára á Norðurlöndum”, segir að meginástæða brottfalls sé lélegur árangur í upphafi skólagöngu, ekki hvað síst skortur á félagsfærni og dræm þátttaka í skólalífinu.
Á milli 60 og 80 prósent nemenda í hverjum árgangi lýkur framhaldsskólanámi, en þrátt fyrir að þetta séu háar tölur er barist fyrir því í öllum norrænum ríkjunum að draga úr brottfalli þeirra sem eftir standa.
Í Svíþjóð hafa 67% nemenda lokið framhaldsskólaprófi þegar þeir standa á tvítugu. Í Noregi ljúka að meðaltali 68% nemenda framhaldsskólanámi.
Á Íslandi ljúka að meðaltali 62% nemenda framhaldsskólanámi 24 ára eða yngri. Í Danmörku ljúka 85% nemenda framhaldsskólaprófi innan 25 ára eftir að þeir ljúka grunnskóla. Engar tölur eru til um brottfall í Finnlandi.
Það getur reynst erfitt að bera löndin saman, skipulag náms er ólíkt og ekki er staðið eins að útreikningum á brottfalli.
Myndin af þessum sameiginlega samfélagsvanda er þó skýr. Ráðherra mennta- og vísindamála munu síðar á þessu ári ræða þennan vanda í Norrænu ráðherranefndinni.
Í skýrslunni er lagt til að tekið verði upp samstarf um rannsóknir og miðlun upplýsinga um verkefni sem skilað hafa árangri og á það að stuðla að því að Norðurlönd standi sig betur í alþjóðlegri samkeppni. Aðgerða er þörf á fleiri sviðum að mati skýrsluhöfunda.
Horfa verður til framhaldsskólans strax, grípa verður til aðgerða eins snemma í leikskólanum og grunnskólanum og unnt er og miða verður námið við forsendur hvers og eins.
„Með heildrænum aðgerðum tekst best að draga úr brottfalli. Hvetja þarf framhaldsskólana til að aðlaga námið að raunveruleikanum í skólastofunni“, segir í niðurstöðum skýrslunnar.
Skýrslan er unnin undir stjórn norsku rannsóknastofnunarinnar NIFU STEP og er liður í hnattvæðingarátaki Norrænu ráðherranefndarinnar sem ber heitið „Gæðamenntun fyrir unga og aldna“.
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
Siv Merethe Lien
Sími
+45 33 96 02 80
Tölvupóstur
sili@norden.org
