Ný norræn tungumálaherferð
Sameiginleg norræn tungumálaherferð á að auka færni barna og ungs fólks til að skilja og eiga samskipti við hvert annað á einu af skandínavísku tungumálunum þremur, dönsku, norsku og sænsku. Ráðgert er að tungumálaherferðinni verði hleypt af stokkunum í febrúar 2010 og að hún standi yfir allt árið.
Herferðinni verður ýtt úr vör af núverandi og tilvonanadi formennskuríkjum í Norrænu ráðherranefndinni Íslandi og Danmörku. Upphafið og endirinn verða norrænir viðburðir.
Dæmi um það sem fram fer er ritgerðasamkeppni fyrir skólabekki og veitinig verðlauna fyrir góða tölvuleiki sem ætlaðir eru leikskólabörnum, en auk þess verður fjöldi viðburða í hverju þjóðlandi.
Fjölmörgum samstarfsaðilum verður boðið að taka þátt í tungumálaherferðinni.
Meðal annarra MR-SAM, MR-U og MR-K, Norrænu barna- og æskulýðsnefndinni (NORDBUK), Nordisk Sprogkoordination auk NiFin, Norðurlöndum í brennidepli og öðrum norrænum stofnunum og norrænu húsunum.
Norræna tölvuleikjaáætlunin, Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurin, Norræni mennigarsjóðurinn og Norðurlandaráð eru einnig hvött til að taka þátt.
Herfeðin var kynnt fyrir menntamála- og rannsóknaráðherrunum, en þeir bera ábyrgð á tungumálasamstarfi á Norðurlöndum, í ráðherranefnd um menntamál á Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi þann 28. október.
Ráðherrarnir staðfestu að fjallað hefði verið um málið og ítrekuðu mikilvægi þess að auka tungumálskilning á Norðurlöndum, sérstaklega meðal barna og ungs fólks.
