Document Actions

Ný norræn verðlaun fyrir barna- og unglingabókmenntir

Norðurlandaráð hefur samþykkt að setja á stofn ný verðlaun fyrir barna- og unglingabókmenntir. Verðlaunin verða veitt í fyrsta sinn árið 2013 og verða óháð hinum virtu bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs.

01/11 2012

„Norræn barna- og unglingabókmenntaverðlaun munu ásamt fjölmörgum öðrum verkefnum auka lestraráhuga barna og ungmenna á sýnilegan hátt”, segir Hadia Tajik menningarmálaráðherra Noregs.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Menningarmálaráðherrar norrænu ríkjanna fimm fengu á fimmtudag víðtækan stuðning við tillöguna um ný norræn verðlaun fyrir barna- og unglingabókmenntir frá þingmönnum í Norðurlandaráði Barna- og unglingabókmenntaverðlaunin verða fimmtu verðlaun sem Norðurlandaráð veitir en þar eru bókmenntaverðlaunin fremst í flokki.

Norrænu menningarmálaráðherrarnir fengu þar með endanlegt samþykki menningarmálanefndar Norðurlandaráðs fyrir því að efla og lyfta menningu barna- og unglinga á Norðurlöndum.

„Norræn barna- og unglingabókmenntaverðlaun munu ásamt fjölmörgum öðrum verkefnum auka lestraráhuga barna og ungmenna á sýnilegan hátt. Við höfum séð að önnur norræn menningarverðlaun eiga þátt í að vekja athygli á menningunni jafnt á Norðurlöndum og alþjóðavettvangi, og það verðum við að nýta okkur á sviði barna og ungmennamenningar”, segir Hadia Tajik.

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eru elstu verðlaun ráðsins. Þau eru 50 ára gömul á þessu ári og eru af flestum talin vera í fararbroddi virtra norrænna verðlauna með mikil norræn og alþjóðleg áhrif. Það vonar norski menningarmálaráðherrann að verði einnig raunin með nýju barna- og unglingabókmenntaverðlaununum:

„Á Norðurlöndum er góð og löng hefð fyrir gæða barna- og unglingabókmenntum Barna- og unglingabókmenntir eru mikilvægur hluti af norrænni sjálfsmynd, og þær njóta alþjóðlegrar viðurkenningar. Ég er því afar ánægð með að tekist hefur að ná breiðri pólitískri samstöðu um að stofna norræn verðlaun fyrir þessa gerð bókmennta", segir Hadia Tajik menningarmálaráðherra Noregs.

Tengiliðir

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org

Anna Enemark
Sími +45 29 69 29 23
Tölvupóstur anen@norden.org