Document Actions

Ný norræn yfirlýsing um grænan hagvöxt

Níu norrænir ráðherrar frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð, og Álandseyjum samþykktu þann 28. júní 2012, Niðarósayfirlýsinguna um ábyrgð grunnatvinnugreinanna og matvælageirans á grænum hagvexti.

28/06 2012
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Norðurlönd hafa gott aðgengi að náttúruauðlindum sem geta skapað grundvöll fyrir hagvöxt í framtíðinni. Sjálfbær samfélagsþróun sem tekur mið af framtíðinni og grænt hagkerfi er óhugsandi án þess að tekið sé til framleiðslu matvæla og annarra vöruflokka úr hafi, vötnum, landbúnaði og beitilöndum.

Niðarósayfirlýsingin
leggur áherslu á að grunnatvinnugreinarnar og matvælaiðnaðurinn liggi til grundvallar grænum hagvexti. Markmiðið er aukin sjálfbærni og samkeppnishæf framleiðsla á, matvælum, fóðri, í byggingariðnað, líforku og nýjar vörutegunda af landi, úr hafi og vatni.

Í yfirlýsingunni leggja norrænu ríkin áherslu á fjölda aðgerða sem geta stuðlað að aukinni grænni verðmætasköpun.

Um sumarfundinn 2012

Norðmenn fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni um fiskveiðar, landbúnað, matvæli og skógrækt (MR-FJLS) árið 2012.

Þessa vikuna hefur Norræna ráðherranefndin um fiskveiðar, landbúnað, matvæli og skógrækt (MR-FJLS) fundað þar hafa þau Lisbeth Berg-Hansen sjávarútvegs- og strandsvæðaráðherra, Trygve Slagsvold Vedum landbúnaðar og matvælaráðherra og Kjell Erik Øie ráðuneytisstjóri heilbrigðis- og umönnunarráðuneytisins tekið á móti norrænu ráðherrunum, en fundurinn er einn af sumarfundum Norðurlandaráðs sem haldnir eru dagana 26. til 29. júní á Rica Nidelven Hótelinu í Þrándheimi.

Les mer

Tengiliðir