Fjármagn, æðri menntun og útflutningur eru mikilvæg atriði fyrir vöxt fyrirtækja á Norðurlöndum, en vinnuumhverfið er afgerandi þáttur. Þetta kemur fram í umfangsmikilli skýrslu frá Norrænu ráðherranefndinni þar sem norræn vaxtarfyrirtæki eru kortlögð og greint frá því hvaða atriði knýja fram vöxt í vaxtarfyrirtækjum.
Vaxtarfyrirtæki starfa á mörgum sviðum á Norðurlöndum. En mörg fyrirtækjanna alls staðar á Norðurlöndum eiga erfitt með að finna hæft starfsfólk sem er tilbúið að starfa á vinnustað. Að hæfur - og vel menntaður - starfskraftur sé mikilvægur þáttur í vexti fyrirtækja er ekkert nýtt. Nýtt er að aðgengi að vel menntuðu starfsfólki er mun mikilvægara fyrir vaxtarfyrirtæki en önnur fyrirtæki.
„Þess vegna eiga önnur fyrirtæki að læra af þeim, en ríkisstjórnir norrænu ríkjanna eiga að tryggja nægilegt hæft og viðeigandi starfsafl í gegnum menntakerfið, innflytjendastefnu og endur- og símenntun. Með nýrri áætlun ráðherranefndarinnar sem nefnist sjálfbær norræn velferð er ætlunin að efla nokkur þessara sviða“, segir Dagfinn Høybråten framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Jafnframt er það það niðurstaða skýrslunnar að líta ætti í auknum mæli á vinnuumhverfi sem vaxtarhvata frekar en vaxtar heftandi. Fyrirtækin vilja einnig betri aðgang að erlendum vinnukrafti og einfaldari reglur um vinnuumhverfi.
Á grunni greiningarinnar eru gerðar þrjár tillögur á sviði vinnumarkaðsmála og á sviði vinnuumhverfismála, þar á meðal að norrænu ríkin ættu að auðvelda fyrirtækjum að ráða alls staðar að úr heiminum, að auka menntun sem hentar vinnumarkaðinum og setja á stofn „vinnumarkaðsvogir“ í þjóðlöndunum til þess að leggja áherslu á að vinnuumhverfi sé viðmiðunarþáttur í samkeppninni um hæfileikafólk.
Í skýrslunni, sem unnin er af greiningarfyrirtækinu DAMVAD í samstarfi við norrænan sérfræðingahóp, er gerð greining á því hvernig hægt er að gera starfsskilyrði norrænna vaxtarfyrirtækja betra. Greiningin byggir á skráningarupplýsingum frá fjórum stærstu norrænu ríkjunum, alls rúmlega 1,4 milljónum atriða, könnun meðal fyrirtækja og starfsfólks, ásamt viðtölum við stjórnendur, aðila vinnumarkaðarins og embættismenn í öllum norrænu ríkjunum.
Norrænu samstarfsráðherrarnir ýttu árið 2009 úr vör hnattvæðingarverkefninu heilbrigði og velferð og stóð það yfir á árunum 2010-2012. SkýrslanNordic Growth Sectors – How can working life policies contribute to improving the framework conditions? er lokaskýrsla hlutaverkefnisins um efnahagsleg vaxtarsvæði.
Lars Djernæs
Sími
+45 33960360
Tölvupóstur
ldj@norden.org
Lars Foldspang ráðgjafi, DAMVAD lfo@damvad.dk (+45) 23 98 00 13