Document Actions

Ný tækifæri í menntun og mannaskiptum milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkja

Auglýst hefur verið eftir umsóknum í Nordplus áætluninni, sameiginlegri mannaskipta- og menntaáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Samtals eru rúmlega 50 milljónir danskrar króna eða um 8 milljónir Evra til skiptanna. Árlega njóta um 10.000 manns góðs af hinum ýmsu styrkjum áætlunarinnar. Þetta árið eru loftslags- og umhverfismál í brennidepli.

15/01 2009

Nordplus er stærsta menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og árlega taka rúmlega 10.000 manns hvaðanæva að á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum þátt í einni af fimm undiráætlunum hennar.

Stofnanir og samtök, sem vilja taka þátt í Nordplus árið 2009, geta sótt um styrki í undiráætlanir frá 12. janúar til 2. mars.

Nordplus áætluninin skiptist í:

• Nordplus Junior fyrir nemendur í grunnskólum og framhaldsskólum
• Nordplus æðri menntun fyrir háskólamenntun
• Nordplus Voksen með áherslu á símenntun og eftirmenntun fullorðinna.
• Nordplus Horisontal sem styrkir samstarf milli ýmissa menntageira og veitir styrki til nýskapandi verkefna þvert á hefðbundin fagsvið.

Fimmta undiráætlunin, Nordplus Norræna tungumála- og menningaráætlunin, hóf göngu sína í janúar 2009.

En sú áætlun er ekki, eins og hinar fjórar, opin fyrir þátttöku frá Eystrasaltsríkjunum, heldur er hún einvörðungu fyrir norræna þátttakendur.

Í kjölfar stjórnvaldsaðgerða á norrænum og alþjóðlegum vettvangi hefur Norræna ráðherranefndin ákveðið að loftslagsmál verði í brennidepli í Nordplus áætluninni árið 2009.

Í hverri undiráætlun eru einnig skilgreind fleiri forgangssvið.

Upplýsingar um forgangssvið fyrir hverja undiráætlun ásamt leiðbeiningum fyrir umsækjendur eru á www.nordplusonline.org

Umsóknarfrestur er til 2. mars 2008.

Jafnt einstaklingar og stofnanir geta sótt um styrki í tungumála- og menningaráætlunina.

Umsóknir í aðrar undiráætlanir Nordplus skulu vera frá stofnunum eða samtökum.