Nýbreytni í tungumálanámi fær verðlaun Norrænu ráðherranefndarinnar
Samband Norrænu félagana og kvikmyndafyrirtækið Snöball Film hljóta verðlaun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir góð verkfæri í tungumálanámi. Bæði verðlaunaverkefnin eru nýskapandi vefsetur sem miða að því að styrkja norrænan tungumálaskilning barna og ungmenna. Verðlaunin nema alls 500.000 dönskum krónum, eða jafnvirði rúmlega 10,5 milljónum íslenskra króna.
Samband Norrænu félaganna hlýtur verðlaun fyrir stafrænan kennsluvettvang, Norðurlönd í skólanum, sem ætlaður er fyrir kennara og nemendur. Í rökstuðningi dómnefndar segir að verkefnið sé metnaðarfullt og framsækið og að veflausnin sé vel smíðuð kennslufræðilega sem verkfæri til tungumálanáms. Vefurinn sameini efni úr ólíkum greinum og skapandi þáttum og á honum séu nýir miðlar samþættir á þann hátt að þeir höfði til barna og unglinga.
Hitt verðlaunaverkefnið, vefsíða Snöball Film, Nordiskesprak.net, byggir á stuttmyndum og virkum textum sem unnir eru fyrir og af ungmennum um öll Norðurlönd. Dómnefnd telur sýnt að vefsíðan muni stuðla sérstaklega að því að efla skilning ungs fólks á talaðri dönsku, norsku og sænsku, sem er mikilvægt verkefni í ljósi umfangsmikillar norrænnar tungumálakönnunar frá árinu 2005 sem leiddi í ljós slælegan skilning norrænna ungmenna á tungumálum frændþjóðanna.
Tilkynnt var um verðlaunin á stóru norrænu tungumálaráðstefnunni í Kaupmannahöfn 11. október. Með ráðstefnunni lauk tungumálaherferð sem verið hefur í gangi frá árinu 2010, en markmið hennar var að bæta skilning barna og ungmenna á norrænu tungumálunum. Verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþinginu í Kaupmannahöfn í nóvember.
Tengiliðir
Kirsten Preisler
Sími
+45 33960378
Tölvupóstur
kp@norden.org
Heidi Orava
Sími
+45 33 96 04 60
Tölvupóstur
heor@norden.org
