Nýjar hnattvæðingaráætlanir eiga að styrkja samkeppnishæfni Norðurlandanna
Norðurlöndin vinna nú að nýjum áætlunum á sviði menningar og sköpunar, heilsu og velferðar, orku- og samgöngumála, byggingageirans og rafrænna vísinda (e-science). Áætlanirnar eru á þeim sviðum sem norrænu ríkisstjórnirnar hafa ákveðið að leggja áherslu á með það að markmiði að efla starfið við að takast á við verkefni sem hnattvæðingin hefur í för með sér.
Halldór Ásgrímsson telur að ákvörðun um nýjar hnattvæðingaráætlanir muni styrkja samkeppnishæfni Norðurlanda
- Ljósmyndari
- Magnus Fröderberg/norden.org
"Þetta er ánægjulegt og ég fagna ákvörðunum sem sýna fram á að Norðurlöndin standa saman um að takast á við verkefni sem hnattvæðingin felur í sér. Þetta gerir Norðurlöndin að svæði með mikla samkeppnishæfni sem eftirsóknarvert verður að vinna, búa og þróa líf sitt á", segir Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar um nýju áætlanirnar.
Meðal áætlananna, sem margar ganga þvert á geira og svið, eru jafnt ný verkefni og viðbót við áætlanir sem þegar eru hafnar. Meðal annars verður bætt við KreaNord, markaðssetningu á stafrænni dreifing á norrænum kvikmyndum.
Á heilsu- og velferðarsviðinu verður sett á laggirnar ný áætlun um sjálfbærni norræna velferðarlíkansins og samkeppnishæfni þar sem sjónum verður beint að helstu velferðarverkefnum Norðurlandanna. Sjónum verður einnig beint að þróun samkeppnishæfni vinnuafls auk þess að stuðlað verður að eflingu heilbrigðis- og vinnuhæfi þjóðar, og lífsgæðum.
Á orku- og samgöngusviðinu er reiknað með að gera úttekt á því hvers vegna og hvernig megi auka nýtingu endurnýjanlegar orku í samgöngum og byggja á svörunum við gerð ramma, stefnumótunar og áætlana til að minnka losun koltvísýrings frá samgöngugeiranum. Markmiðið er að setja af stað ferli til að þróa áfram hugmyndina um Norðurlöndin sem "Grænadal - The Green Valley of Europe”. Hugmyndin vaknaði á hnattvæðingarráðstefnu forsætisráðherranna, sem haldin var á Íslandi fyrr á þessu ári
Á sviði rafrænna vísinda er ætlunin að auka sýnileika norrænna öndvegisrannsókna, samræma svæðisbundnar og alþjóðlegar rannsóknaáætlanir, auka framfarir á sérvöldum rannsóknasviðum (Grand Challenges), og byggja upp færni og aðstæður fyrir þekkingariðnað framtíðarinnar.
Loftslagsvænar byggingar fela meðal annars í sér stuðning við úttekt á mögulegri sameiginlegri þróun og kynningu á orku- og CO2-hlutlausum bygginum og svonefndum plúsorkubyggingum.
Norrænu forsætisráðherrarnir fólu samstarfsráðherrunum að taka ákvörðun um nýju áætlanirnar. Þingmenn í norrænu samstarfi, hafa einnig tekið þátt í ferlinu í gegnum Norðurlandaráð.
"Nýju áætlanirnar eru kvittun frá ríkisstjórnunum um að starfið hafi gengið vel hingað til og að því eigi að halda áfram á nokkrum sviðum til að efla norrænt notagildi" segir framkvæmdastjórinn jafnframt.
Norræna samstarfið um hnattvæðingarmál hófst þegar árið 2007 þegar norrænu forsætisráðherrarnir funduðu í Punkaharju í Finnlandi. Hugmyndin felst í því að Norðurlöndin eigi, á þeim sviðum þar sem það borgar sig fremur að vinna markvisst saman að verkefnum en í hverju landi fyrir sig. Norrænn virðisauki verður til þegar Norðurlöndin standa saman sem eitt svæði og styrkja á þann hátt samkeppnishæfni sína og nýsköpunarkraft á alþjóðavettvangi.
Frá því að formleg ákvörðun var tekin haustið 2008 hafa aðildarríki Norrænu ráðherranefndarinnar sett á laggirnar stærstu rannsóknaáætlun fram til þessa, Öndvegisrannsóknaáætlunina, haldið fjölda ráðstefna um loftslags- og orkumál, Nordic Climate Solutions, mynda sameiginlegan vettvang um norrænar orkulausnir, Nordic Energy Solutions, og sameinast um að markaðssetja skapandi iðngreinar í gegnum áætlunina KreaNord. Auk þess munu Norðurlöndin standa saman sem eitt svæði á heimssýningunni í Shanghai 2010.
Nánar um starfið við að takast á við verkefni hnattvæðingarinnar og nýju áætlanirnar
