Nýr forseti vill berjast gegn atvinnuleysi ungs fólks
Atvinnuleysi ungs fólks verður í brennidepli í Norðurlandaráði æskunnar (UNR) árið 2010. Sunnudaginn 25. október var Minna Lindberg einróma kjörin nýr forseti Norðurlandaráðs æskunnar.
"Það er eitthvað að, þegar svo margt ungt fólk undir 30 ára er atvinnulaust", segir Lindberg, sem tók við stjórn UNR af Lisbeth Sejer Gøtzsche á sunnudag.
Aukið atvinnuleysi meðal unga fólksins á Norðurlöndum er ekki eingöngu tilkomið vegna fjármálakreppunnar, vandinn hefur verið vaxandi lengi. Minna Lindberg telur að þetta verði eitt mikilvægasta málefnið á næstunni, og að Norðurlandabúar verði að læra hver af öðrum og leitast við að vinna lausnir á vandanum. Ákveðið var á Norðurlandaráðsþingi æskunnar að unga fólkið og vinnumarkaðurinn yrði meginviðfangsefnið árið 2010.
Nýkjörinn forseti, sem er fulltrúi ungliðahreyfingar norræna miðflokka, vill berjast fyrir fleiri málum. Sem dæmi má nefna auknar áherslur á viss málefni, tungumálaumræðuna og aukinn sýnileika.
"Það er mikilvægt að Norðurlandaráð afmarki sig og einbeiti sér að einstökum málefnum til að ná betri árangri, það á til að mynda við um afnám stjórnsýsluhindrana. Þar eru miklir möguleikar á að bæta aðstæður", segir Lindberg.
Hún vill halda tungumálaumræðunni vakandi.
"Þetta á ekki eingöngu við um túlkun, heldur einnig það að tala skýrara og muna að það eru ekki allir sem skilja það sem sagt er. Við viljum einnig leggja áherslu á tungumálamenntun", segir Lindberg sem er finnsk.
Hún telur að eitt mikilvægasta verkefnið verði að koma norrænum skilaboðum til flokkahópa og almennings.
"Þeir eru margir, sem alls ekki eru vissir um hvað norrænt samstarf felur í sér", sagði nýkjörinn forseti Norðurlandaráðs æskunnar að lokum.
Minna Lindberg var áður fulltrúi í forsætisnefnd UNR og þekkir því opinbert norrænt samstarf.
