Document Actions

Nýr grænlenskur ráðherra í ráðherranefnd um menntun og rannsóknir

Nick Nielsen tók nýlega við embætti ráðherra menntunar, kirkjumála, menningar og jafnréttismála í grænlensku ríkisstjórninni. Þann 17. apríl tók hann þátt í norrænum ráðherrafundi í fyrsta sinn.

18/04 2013

Nick Nielsen, nýr ráðherra í grænlensku ríkisstjórninni. Ljósmyndari, Mikael Lundgren.

Ljósmyndari
Mikael Lundgren/norden.org

„Fyrir mér er norrænt samstarf nýtt og áhugavert. Menning okkar og gildi eru ólík en saman erum við öflug. Fyrir okkur á Grænlandi er mikilvægt að eiga gott norrænt samstarf. Menntun er tiltölulega nýr málaflokkur á Grænlandi. Við vonumst því eftir að fá mikla þekkingu frá hinum norrænu ríkjunum“ sagði Nick Nielsen, ráðherra í tengslum við sinn fyrsta ráðherrafund í Stokkhólmi.

Þrír flokkar mynda grænlensku ríkisstjórnina; Siumut, Atassut og Partii Inuit. Flokkarnir mynda samsteypuríkisstjórn tímabilið 2013-2017.

Tengiliðir

Anita Skoglund
Sími +4531717153
Tölvupóstur asko@norden.org