Nýr rektor Norræna lýðheilsuháskólans
Anders Foldspang, prófessor við Árósaháskóla, tekur þann 1. febrúar 2010 við embætti rektors Norræna lýðheilsuháskólans (NHV). Skólinn er staðsettur í Gautaborg og sér um framhaldsmenntun u.þ.b. 700 einstaklinga á ári á sviði heilbrigðisþjónustu og veitir ýmis próf í lýðheilsufræðum.
Anders Foldspang tekur við embætti rektors Norræna lýðheilsuháskólans í Gautaborg. Mynd: Lars Kruse/AU-foto
- Góð lýðheilsa er afar mikilvæg og eitt af grundvallaratriðum norræns samstarfs. . Mikilvægt er að veita einstaklingum gagnlega framhaldsmenntun af miklum vísindalegum gæðum , sem getur nýst samfélaginu og eflt lýðheilsustarfið. Lýðheilsa fólks nú og í framtíðinni er alþjóðlegt viðfangsefni og ég er sannfærður um að Anders Foldspang er rétti maðurinn til þess að þróa NHV á norrænum grunni Þetta sagði Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, í tilefni af ráðingu Foldspang í rektorsstöðuna.
Anders Foldspang, nýr rektor skólans hefur verið prófessor í lýðheilsufræðum við Áraósaháskóla síðan 1997. Hann hefur stundað háskólakennslu í í þrjá áratugi og unnið mikið rannsóknarstarf. Meðal annars hafa birst eftir hann 67 vísindagreinar á sviði lýðheilsufræða í alþjóðlegum fræðiritum. Hann hefur stjórnað fjölmörgum menntaverkefnum og námskeiðum á sviði lýðheilsufræða og jafnframt sinnt mörgum trúnaðar- og sérfræðistörfum á Norðurlöndum. Þess utan er Foldspang virkur í afar víðfeðmu norrænu og alþjóðlegu tengslaneti. Hann hefur verið virkur innan Norrænna samtaka um læknisfræðimenntun og stjórnarmaður í ASPHER (Association of Schools of Public Health in the European region), og forseti samtakanna árin 2007-2008. Anders Foldspang er fæddur árið 1945.
Göran Bondjers fráfarandi rektor Norræna lýðheilsuháskólans fer á eftirlaun og lýkur störfum þann 1. febrúar 2010.
NHV er stofnun um æðri menntun og rannsóknir á sviði lýðheilsufræða og heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Háskólinn býður grunn-, símenntunar- og rannsóknanámskeið í lýðheilsufræðum fyrir starfsfólk í heilbrigðisþjónustu og tengdum sviðum. Eitt af því sem eykur gildi þess að nema við NHV er norræna áherslan, sem sem mótar allt kennslustarfi og aðra starfsemi. Rúmlega 700 einstaklingar stunda nám við NHV.
