Document Actions

Nýr starfsmannastjóri Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar

Nýr starfsmannastjóri hefur verið ráðinn á skrifstofu Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar. Norðmaðurinn Unni Vennemoe mun taka við mannauðsdeild skrifstofunnar í sumar.

22/04 2010

Unni Vennemore nýr starfsmannastjóri Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar.

Það verður starfsmannastjóri með mikla alþjóðlega reynslu, sem tekur við stjórnun og þróun mannauðsdeildar Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn.

Unni Vennemoe hefur búið og starfað erlendis í fjölda ára og hefur mikla reynslu af framkvæmd og stefnumörkun í mannauðsstjórnun af störfum sínum hjá alþjóðlegum samtökum. Hún hefur meðal annars starfað hjá Kjarnorkustofnun Sameinuðu þjóðanna og CGIAR - Consultative Group of International Organisations - sem tengist bæði Sameinuðu þjóðunum og Alþjóðabankanum.

Þessi reynsla mun nýtast nýja starfsmannastjóranum á skrifstofunni í Kaupmannahöfn.

„Ef Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð ætla að ná þeim árangri sem stofnanirnar hafa sett sér, er mikilvægt, að mannauðsdeildin sé virkur þátttakandi í starfinu. Meðal annars með árangursríkri gæðaráðgjöf", segir Unni Vennemoe.

Unni Vennemoe er með embættispróf í sálarfræði og stofnanasálfræði með félagslega mannfræði og verkefnisstjórnun sem aukafag, frá Háskólanum í Ósló. Veganesti, sem ásamt reynslu af starfi hjá alþjóðlegum samtökum mun nýtast nýja starfsmannastjóra Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar:

„Alþjóðleg reynsla Unni Vennemoes passar mjög vel fyrir stofnun eins og okkar. Fjölþjóðleg samsetning starfsfólks gerir miklar kröfur til starfsmannastjórnunar og við hlökkum til að bjóða Unni Vennemoe velkomna á þennan norræna vinnustað", segir Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

Tengiliðir

Charlotte Aalling
Sími +45 33 96 02 50
Tölvupóstur caa@norden.org

Tengt efni