Nýr yfirmaður í grænlensku menningarsamstarfi
Þann 15. febrúar tekur Leise Johnsen við stöðu framkvæmdastjóra Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi, NAPA. Markmið hennar er að auka vitund um margbreytilegt mennningarlíf Grænlendinga.
Þann 15. febrúar tekur Leise Johnsen við stöðu framkvæmdastjóra Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi, NAPA
„Heimurinn bendir á Grænland. Grænland þarf meira en nokkru sinni að markaðssetja sig gagnvart hinum hnattvædda heimi, sýna hin gífurlegu gildi landsins og þar með skapa aðstæður fyrir nýja hugsun, þróun og hagvöxt, segir Leise Johnsen .
Leise Johnsen hyggst notfæra sér þekkingu sína og rannsóknir á menningarsögu Grænlands og nota hinn mikla grænlenska menningararf sem stökkbretti og vinna að því að setja menninguna í nútímalegt samhengi fyrir íbúa Grænlands, Norðurlanda og í heiminum öllum.
Meðal þess sem Leise Johnsen hefur hug á að gera, er að auka sýnileika NAPA sem áhugaverðs hluta af norrænu menningarsamstarfi. Jafnframt vill framkvæmdastjórinn, sem býr yfir mikilli reynslu, efla þjónustu stofnunarinnar við samstarfsaðila og umsækjendur.
Norræna stofnunin á Grænlandi / NAPA er menningarstofnun sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndinni. Stofnunin var opnuð árið 1987. Verkefni hennar er að taka þátt í að þróa, styðja og efla grænlenskt menningarlíf, með áherslu barna- og unglingamenningu. . NAPA stofnar til og býður sveitarfélögum á Grænlandi og alls staðar á Norðurlöndum að vinna menningarverkefni með grænlenskum og norrænum listamönnum.
Nánari upplýsingar:
Leise Johnsen, framkvæmdastjóri, sími: +299 26 48 75
Charlotte Aalling, ráðgjafi hjá Norrænu ráðherranefndinni
Sími: +45 33 96 02 00
Tengiliðir
Charlotte Aalling
Sími
+45 33 96 02 50
Tölvupóstur
caa@norden.org
