Nýsköpun þarf rými og nægilegan mannafla
Öll norrænu ríkin verða að vinna saman sem einn nýsköpunargeiri og skapa sameiginlegan markað fyrir grænar lausnir, þannig gæti loftslagsvandinn verið driffjöður fyrir atvinnulífið. Þetta var ein af niðurstöðum af sameiginlegum fundi í Norðurlandaráðs í Ósló dagana 13. og 14. apríl. Á þeim var rætt um fjölmarga þætti til að efla nýsköpun með sameiginlegu átaki.
Á fundi Norðurlandaráðs í Ósló 13. apríl var sjónum beint að nýsköpun og sjálfbærum hagvexti.
„Við verðum, sameiginlega, að standa vörð um auðlindir okkar og vinna að því að skapa aukin verðmæti og samkeppnishæfni með sameiginlegum norrænum aðgerðum“, sagði Lisbeth Grönfeldt Bergman formaður atvinnumálanefndar Norðurlandaráðs.
Margt bendir til þess að forsendur séu fyrir hendi. Norðurlöndin eru í efstu sætum þegar kemur að nýsköpun samkvæmt alþjóðlegum mælikvörðum, eins og til að mynda hjá ESB Innovation Scoreboard og UN Human Development Index; verg þjóðarframleiðsla er hvað mest á íbúa á Norðurlöndum, svo og fjárfesting í rannsóknum og þróun. „En málið snýst um miklu meira en rannsóknir. Nýsköpun er lykillinn og lausnirnar felast í raunverulegum mannlegum þörfum“, sagði Ivar Kristensen, framkvæmdastjóri Norrænu Nýsköpunarmiðstöðvarinnar (NICe).
Hann benti á nokkrar ástæður fyrir því að vert væri að beina sjónum að nýsköpun á norrænum grundvelli:
- Traust ríkir milli landana, sem er grunnur að góðu samstarfi. Auk þess er skrifræði ekki mikið á Norðurlöndum.
- Viðskipti milli landana eru, þrátt fyrir hnattvæðinguna, enn jafn mikil og þau voru á sjöunda áratug síðustu aldar, öll eru löndin lítil með lítil opin hagkerfi og fjölmörg smá og meðalstór fyrirtæki, sem geta verið gróðrastía fyrir nýsköpun.
- Og að endingu verður til lágmarksfjöldi á heimamarkaði með 25 milljónum íbúa, sem virkar vel sem æfingabúðir fyrir fyrirtækin áður en þau sækja á alþjóðamarkað“, sagði Ivar Kristensen.
Hann benti á sem gott dæmi hve gott væri að stunda nýsköpun fyrir grænar lausnir á sameiginlegum norrænum markaði. á stærra svæði benti hann á sameiginlegar norrænan markað fyrir grænar lausnir.
Það myndi auka burði markaðarins til að þróa, prófa og markaðsetja nýsköpun og um leið samþætta nýsköpun og sjálfbæran vöxt.
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
